Valsblaðið - 01.05.2002, Qupperneq 30
Fyrirliði meistaraflokks í knattspyrnu
segir markmið liðsins vera að festa sig i sessi í úrvalsdeildlnni.
Bjössi í dýrmœtum faðmi Valsjjölskyldwmar, eiginkonan Bríet Pálsdóttir og prinsess-
urnar Valdís Björg (hjá pabba) og sú litla, Sonja Eva. (Mynd ÞÞ)
Sigurbjöm Hreiðarsson hefur nú verið að
Hlíðarenda í rúman áratug með eins árs
hléi en þá lék hann með Trelleborg í
sænsku úrvalsdeildinni. Hann hefur því
upplifað þá miklu niðursveiflu sem orðið
hefur á knattspymunni í Val á undan-
fömum árum en það er engan bilbug að
finna á honum. Um þessar mundir er
langt síðan útlitið hefur verið eins gott
með knattspymuna í Val en það má lítið
út af bregða og hið unga lið, sem Sigur-
bjöm fer fyrir úti á vellinum, mun þurfa á
öflugum stuðningi að halda næsta sumar.
Hvaða væntingar skyldi hann hafa
fyrir næsta tímabil?
„Við gerðum mjög góða hluti síðasta
sumar og gerðum það sem hefur ekki
verið gert að Hlíðarenda í mörg ár, að
spila góðan fótbolta. Mínar væntingar
eru þær að við höldum því áfram og spil-
um okkar fótbolta. Leikmannahópurinn
er orðinn sterkari en hann var í ár þannig
að við getum verið eitt af bestu liðum
landsins ef við viljum. Það þarf bara
áræðni til þess. Hið ótrúlega góða gengi
liðsins á fyrri hluta Islandsmótsins gerði
það að verkum að fólk sagði að deildin
væri bara svona léleg, engir alvöru leikir
og annað slíkt. Við fengum alvöra leiki í
fyrri umferðinni gegn Víkingi og Þrótti
og unnum öragglega. Við lékum á ótrú-
lega döprum Valsvelli í byrjun sumars og
andstæðingamir pökkuðu í vöm, slíkt er
erfitt að eiga við. Það var okkar áskorun
og við leystum það oftar en ekki á mjög
sannfærandi hátt þrátt fyrir að endahnút-
inn vantaði stundum en spilið var mjög
gott.”
— Hafði það ekki mikið að segja að
hópurinn virkaði samheldinn?
„Jú gríðarlega. Við vorum allir
ákveðnir í að spila fótbolta með hjartanu.
Það er enginn sem spilar sig stóran innan
hópsins. Allir eru meðvitaðir um það að
við erum með gott lið og það býr gríðar-
legur karakter í því. Síðast en ekki síst
var það Valshjartað sem var til staðar
sem ég tel að hafi vantað sumarið 2001.
Við rifum þetta upp síðasta sumar, feng-
um ákveðinn frið til að vinna, engar
væntingar í loftinu. Við stóðum þétt sam-
an að þessu og stöndum uppi sem mun
sterkari einstaklingar og mun sterkari
knattspyrnumenn eftir þetta og vitum nú
að við getum treyst hverjum öðrum.“
— Hefur tveggja ára dvöl í 1. deild
ekki slæm áhrif á knattspyrnuna í
heild sinni hjá félaginu?
„Það var gríðarlegt áfall fyrir félagið
að falla í fyrsta sinn '99. Við spiluðum
ágætis bolta framan af sumri 2001 en
föllum samt, sem var fáránlegur klaufa-
30
Valsblaðið 2002