Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Page 9

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1891, Page 9
9 eptir því reki, sem þeir eru á. Að því leyti má segja, að skólaiðnaðurinn feli í sjer heimilisiðnaðinn, en heim- ilisiðnaðurinn felur ekki í sjer skólaiðnaðinn. J>að getur opt verið freisting fyrir kennarann, að verja meiri tíma en góðu hóíi gegnir til þess, að láta smíða ýmsa hluti, eða þá að láta það eptir nemend- unum, að lofa þeim að byrja of snemma á því að smíða eitt eða annað. En það er sami óliagnaður að því fyrir eptirvinnuna, eins og ef byrjað er of snemma að láta börnin kveða að, af því að þeim leiðist að stafa. Eng- inn kennari má því láta misskilning eða ranga dóma annara um skólaiðnaðinn leiða sig til þess, að vikja af rjettri ieið. Menn læra með tímanum, að þó að mun- irnir sjálfir, sem smíðaðir eru, sjeu mikils virði, þá eru þeir þó ekki aðalatriðið, heldur vinnan að þeim; þau gagnlegu áhrif, sem liún hefur á uemendurna, er að- alatriðið. Sá menntandi krapttir, sem er í skólaiðnað- inum, er hinn eini rjetti mælikvarði á gagnsemi hans. ]>að var áðan teldð fram, að markmið skólanna á vorum dögum væri það, að mennta fyrir lifið. En. það þykir einatt talsvert á bresta, að þeir nái þessum tilgangi. pað er einnig satt: skólarnir mennta ekki beinlínis fyrir lífið, heldur óbeinlínis. J>eir kenna barninu ekki að vera skósmiður, prestur eða sj?slu- maður, en þeir veita því þá almenna menntun, sem er því gagnleg, hvaða lífsstöðu sem það síðar kemst í. Á sama hátt er gagnseinin af skólaiðnaði meira ó- beinlínis en beinlínis. Kennslan í skóla-iðnaði miðar ekki til þess, að búa til handverksmenn, heldur miðar liún til þess, að veita öllum, bæði embættismannsefninu og þeim, sem seinna lifa á handafla sínum, eða af and- legri vinnu, bæði ríkum og fátækum, þá menntun, sem þeir geta allir haft. gagn af. J>að er ekki einungis tiK gangurinn, að kenna nemandanum að neyta lianda sinna

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.