Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Blaðsíða 18
18
1990–2004: aukin þjónusta, ný lög uM
lEikskóla og nýtt fæðingarorlof
Þegar höfð er í huga óánægja reykvískra foreldra með stuðning stjórnvalda, sem kom
fram í rannsókn Baldurs kristjánssonar (1989), kemur ekki á óvart að dagvistarmál
voru mjög áberandi kosningamál í sveitarstjórnarkosningum 1994. Þau voru eitt af
helstu baráttumálum framboðs R-listans, sameiginlegs framboðs allra flokka nema
Sjálfstæðisflokks, sem í kjölfar kosningasigurs í Reykjavík lagði mikla áherslu á upp-
byggingu leikskóla. Tölur yfir hlutfall barna í leikskólum sýna að svipuð þróun átti
sér stað í flestum sveitarfélögum, en engin samanburðarrannsókn hefur verið gerð á
þróuninni í einstökum sveitarfélögum.
í upphafi tíunda áratugarins voru sett ný lög um leikskóla (nr. 48/1991 og nr.
78/1994). Með þessari lagasetningu var hugtakið dagheimili afnumið og allar stofn-
anir samkvæmt lögunum nefndar einu nafni leikskólar. í 7. gr. laganna segir: „Bygg-
ing og rekstur leikskóla skal vera á kostnað og í umsjón sveitarstjórna og sjá þær um
framkvæmd þessara laga, hver í sínu sveitarfélagi, þeim er skylt að hafa forystu um
að tryggja börnum dvöl í góðum leikskóla.“ Á tímabilinu 1990–2004 hafa sveitarfélög
aukið þjónustu, bæði hvað varðar fjölda barna sem fá vistun og einnig þann tíma sem
börnin geta verið í leikskólum (Guðný Björk Eydal, 2005c). óhætt er að fullyrða að
þjónusta leikskóla hefur þróast frá því að vera úrræði sem ákveðnum hópum barna
stóð til boða til þess að vera þjónusta sem nær öll börn eiga kost á frá tveggja ára
aldri.
Tafla 3 sýnir þróunina á Norðurlöndum frá 1994–2003 varðandi hlutfall barna í dag-
vist. Tölfræðin sýnir glögglega breytingar á framboði og áherslum landanna í þessum
efnum: íslensku tölurnar, sem áður voru líkastar þeim norsku, eiga í lok tímabilsins
mest sammerkt með þeim dönsku og sænsku.
Tafla 3 – Hlutfall barna í dagvist á Norðurlöndum 1994 og 2003.
D F Í N S
Hlutfall barna 0–2 ára í dagvist 1994 1) 50 16 32 18 32
Hlutfall barna 1–2 ára í dagvist 2003 2) 78 36 75 44 65
Hlutfall barna 3–6 ára í dagvist 1994 80 53 63 61 73
Hlutfall barna 3–5 ára í dagvist 2003 94 68 94 85 94
Útgjöld vegna dagvistunar sem % 1.64 0.93 1.15 0.64 0.87
af þjóðarframleiðslu 2003
1) Hlutfall barna í dagvist 1994: Social security in the Nordic countries: Scope, expenditure and finances
1995, 1997:56.
2) Hlutfall barna í dagvist 2003: Social protection in the Nordic countries 2003, 2005:32; Útgjöld: Social
protection in the Nordic countries 2003, 2005.
Eins og tafla 3 sýnir hefur framboð á dagvist aukist alls staðar á Norðurlöndum, en
um leið skera Finnland og Noregur sig nokkuð úr, sérstaklega hvað varðar fram-
ÞróUn og e inkenni í s lenskrar UmönnUnarstefnU 144–2004