Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 54

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Page 54
4 ein helsta leiðin til að afla þekkingar, m.a. um náttúruna. Hann segir að undir þennan leik megi ýta með því að koma börnum í aðstæður sem geri þeim mögulegt að leika sér með efni á ýmsan máta og veki áhuga og athygli barnanna. Einnig megi gera þetta með því að taka þátt í leiknum með börnunum og vekja athygli þeirra á ýmsu því sem læra má af og ekki síður að taka eftir hvað það er sem vekur athygli og áhuga barn- anna. Þarna hefur sú þekking og reynsla sem skapast hefur í leikskólastarfi margt að gefa í skólastarf yngstu barnanna í grunnskóla. Eð­lisfræð­ik­ennsla barna á leik­sk­ólaaldri Þó að lítið hafi verið um rannsóknir á náttúrufræðinámi barna á leikskólaaldri hefur verið talsvert um það að börn fáist við viðfangsefni náttúrufræða í leikskóla. Oftar en ekki er fengist við líffræðileg viðfangsefni en þó hefur verið nokkuð um verkefni á sviði eðlisfræði (Howe, 1993; kristín Norðdahl, 1997; Sprung, 1996). Dæmi um athyglis- verð eðlisfræðiverkefni fyrir leikskólabörn sem þróuð voru fyrir 1980 eru verkefni sem kamii og DeVries (1993) gerðu og byggðu á kenningum Piaget um efnisþekkingu og um mikilvægi félagsþroska fyrir nám. í þessum verkefnum var ekki lögð áhersla á að kenna hugtök vísindanna heldur var markmiðið að gefa börnunum reynslugrunn fyrir frekara nám og fá þau til að ræða saman um tilraunir sínar. kennsla sem miðar að því að hjálpa börnum að þróa hugmyndir sínar í ákveðna átt hlýtur að verða með dálítið öðrum hætti en kamii og DeVries (1993) leggja til, einkum ætti kennarinn að hafa virkara hlutverk við að móta reynslu barnsins, beina athygli þess að ákveðnum atriðum og kynna fyrir því ný hugtök. Harlen (2001) segir að engar sannfærandi rannsóknir hafi verið gerðar sem sýni fram á að ein leið umfram aðra hjálpi börnum að þróa hugmyndir sínar til frambúðar. Samt sem áður vísa rannsóknir á hugmyndum barna og hugmyndir hugsmíðahyggju um nám á ákveðnar leiðir í kennslunni. Samkvæmt Palmer (2005), sem hefur gert úttekt á líkönum um kennslu í anda hugsmíðahyggju, eru ákveðnir þættir í kennslunni þeim flestum sameiginleg. Þessir þættir eru eftirfarandi: í byrjun kennslu er mikilvægt að fá börnin til að tjá skilning sinn á viðfangsefninu hverju sinni. í þessu samhengi bendir Robbins (2005) á mikilvægi þess að hafa í huga að ung börn nota margar leiðir til að skipuleggja og tjá hugsun sína. auk þess að tala syngja þau, svipbrigði þeirra segja oft til um hvernig þau hugsa um hlutina, þau tala gjarnan við sjálf sig og teikna það sem þau eru að hugsa um. Með því að vera vakandi fyrir öllum þeim leiðum sem börn nota til að tjá sig fæst betri skilningur á því hvernig þau hugsa um viðfangsefnið hverju sinni. í framhaldi af tjáningu barnanna er reynt að ögra hugmyndum þeirra sé þess þörf. Þetta má gera á ýmsan hátt, með því að ræða mismunandi hugmyndir um viðfangs- efnið hverju sinni eða gefa börnunum kost á nýrri reynslu sem gæti víkkað út fyrri reynslu þeirra af viðfangsefninu og ögrað hugmyndum þeirra. Með því að ræða um hugmyndir sínar við fullorðna og félaga sína gera börn sér oft betur grein fyrir hug- myndum sínum. Hlutverk kennarans er að kynna börnunum nýjar hugmyndir ef þarf og fá þau til að vega og meta ólíkar hugmyndir. Dewey (2000) lagði áherslu á að börn læra ekki fyrst og fremst af reynslunni heldur af því að ígrunda reynsluna. Driver (1983) ítrekaði þetta í gagnrýni sinni á uppgötvunarnám sem mikil áhersla var á í „He im­Ur inn er al lUr raUð­Ur“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.