Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Side 84
84
Þær aðstæður eða viðfangsefni sem flest börnin nefndu að þeim þættu leiðinleg eru
þau sem flokkast ekki undir leik; viðfangsefni sem börnin höfðu ekki stjórn á sjálf og
kröfðust þess að þau væru í hóp, sætu kyrr og færu eftir fyrirmælum frá fullorðnum.
Heimspekitímar voru t.d. oft nefndir sem leiðinlegir og erfiðir. Þar er gert ráð fyrir að
börnin fari eftir ákveðnum fyrirmælum, bíði og sitji kyrr og þar mega þau ekki ráða
því sem þau gera. Hér ræða tvö börn um heimspekina.
R: af hverju er erfitt að fara í heimspeki?
Sveinn: af því að þá þurfum við að tala og tala og tala og þá þurfum við að sitja og
sitja og sitja.
María: ókei, ókei, tala og megum ekki hreyfa okkur einu sinni.
Nokkrir töluðu líka um að samverustundin væri erfið og leiðinleg því þá þyrftu þau
að sitja og hlusta. Hér er dæmi um umræður tveggja drengja um samverustundina.
Sveinn: Mér finnst geðveikt leiðinlegt í samverustund.
María: Já.
R: Finnst þér leiðinlegt að vera í samverustund? Geturðu útskýrt það, af hverju? af
hverju er svona leiðinlegt?
Sveinn: Út af því að við þurfum að sitja og sitja og sitja.
María: Hlusta, hlusta og sitja og hlusta á lalala.
Sveinn: Bara bla bla bla bla.
í spurningaspilinu voru börnin spurð hvar þeim fyndist best að leika sér og á hvaða
stöðum í leikskólanum væri leiðinlegast að leika sér. í töflu 3 eru niðurstöður þeirrar
spurningar. Þau atriði sem merkt eru með stjörnu voru nefnd oftar en einu sinni.
athyglisvert er að þeir staðir sem sum börnin nefndu sem skemmtilegasta töluðu
önnur börn um sem leiðinlegustu staðina. Þar var um að ræða svæði þar sem börnin
léku sér ein án afskipta fullorðinna. Sumum börnunum fannst skemmtilegt að leika
sér í lokuðum rýmum, svo sem inni á baði eða eldhúsi, án afskipta fullorðinna. öðrum
börnum fannst þetta hins vegar verstu staðirnir og nefndu opin rými, þar sem full-
orðnir voru til staðar, sem skemmtilegustu svæðin.
Tafla 3 – Bestu og verstu staðirnir
Best að leika sér Leiðinlegast að leika sér
í stóru kubbunum.* Inni á baði.*
Inni á baði.* í eldhúsinu.*
Úti.* í einingakubbum.*
í eldhúsinu.* í kartöflugarðinum.
Hérna á Hvítu. að hlusta.
Inni í dýrunum. Inni á teppinu.
í einingakubbasvæði.
Á Hvítu deild.
l e ikskól inn frÁ s jónarHól i Barna