Búnaðarrit - 01.01.1967, Page 27
STEINGRIMUR STEINÞORSSON
19
efnasamningi þeirra flokka, Framsóknar- og Alþýðu-
flokks, er að ríkisstjórninni stóðu. Nefnd sú var oftast
kölluð „Rauðka“ — sennilega af því, að ríkisstjórnin
þótti nokkuð vinstrisinnuð svo og nefndin sjálf. „Rauðka“
sat á rökstólum nokkur ár og innti af liendi mikið starf,
sem um sumt var grundvallarverk. Voru rannsóknir
nefndarinnar, frumvörp hennar og tillögur margar liin-
ar atliyglisverðustvi og komust til framkvæmda sumar.
Nvi hnigu allir straumar til þeirrar áttar, að hlavit að
styttast í veru Steingríms á Hólum. Hann stóð á vega-
mótum — óviss um stund, lvversu við skyldi bregðast.
Hann og þau hjón bæði kunnu ágætlega við sig á Hólum.
Þeim leið þar mætavel. Þeim var sárt um staðinn og skól-
ann. Þavv liöfðu eignazt fjölda vina í Skagafirði. Stein-
grímur hafði verið kosinn þingmaður Skagfirðinga og
líkvir til, að hann hlyti þingsætið aftur og meiri miklu,
ef liann sæti kyrr á Hóhun og viki eigi þaðan á lirott.
Hins vegar blöstu við önnur verkefni, víðara starfssvið
til að reyna kraftana og vinna alþjóð gagn, ef gifta fylgdi.
Og mciri frami. Steingrímur sóttist að vísu ekki eftir
metorðum, otaði sjálfum sér aldrei fram. Hann var kall-
aður til allra þeirra fjölmörgu og fjölbreytilegu starfa,
er liann innti af Iiendi. En eigi að síður bar hann í hrjósti
ríkan sjálfsmetnað og mikið kapp undir liæglátu yfir-
bragði og á stundum stóisku fasi.
Steingrímur var á háðum áttum um stund. Nefndar-
störf í liöfuðstaðnum langtímum saman gátu illa sam-
rýmzt skólastjórn og búsýslu á Hólum. Og svo kom það
til, sem vir skar.
Sigurður Sigurðsson, fyrrum skólastjóri á Hólum, lét af
starfi búnaðarmálastjóra árið 1935. Raunar liöfðu búnað-
armálastjórar verið tveir um nokkra hríð. Það var ráð-
Stöfun, sem gripið hafði verið til í eins konar örvænt-
ingu, neyðarráðstöfun, sem hlaut að leiða til tjóns fyrir
Búnaðarfélag Islands og lama álirif og þrótt þessarar
höfuðstofnunar íslenzkrar hændastéttar. 1 félaginu ríkti