Búnaðarrit - 01.01.1967, Síða 91
SKÝRSLUK STARFSMANNA
83
spekingar á sviði grasræktar frá nær öllum löndum, þar
sem á annað borð gras getur þrifizt. Ráðstefnan stóð yfir
dagana 7. — 16. júlí. Ég reyndi að gera nokkra grein fyrir
ráðstefnunni í búnaðarþætti, sem ég flutti í Ríkisútvarp-
ið skömmu eftir að ég kom heim. Þeir Magnús Óskars-
son á Hvanneyri og Ingvi Þorsteinsson, hjá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins, sóttu einnig þessa ráðstefnu.
Vonandi mun ekki langt að bíða þess, að við nranum gera
nánari grein fyrir ýmsu því, sem þar kom fram, heldur
en gert liefur verið. Þriðja ferðin á árinu var sem farar-
stjóri í bændaferð Búnaðarfélags Islands til Englands.
Mörg undanfarin ár hafa verið farnar bændaferðir á
vegum B. 1. lil annarra landa. Meðal annars var farin
ferð til Bretlands veturinn 1965 á Smithfield sýninguna,
sem haldin er árlega í London. Þá kom í ljós, að veru-
legur áhugi var fyrir slíkri ferð að vetrarlagi. Þess vegna
taldi ég rétt að kanna, livort nægileg þátttaka fengist,
svo að liægt yrði að taka leiguflugvél til Bretlandsferðar
á Smithfieldsýninguna 5.—9. desember 1966. Fljótlega,
eftir að smáklausa var birt í Frey um væntanlega ferð,
bárust að pantanir víðs vegar að af landinu, svo að sýnt
þólti, að nægilega margir þátttakendur fengjust til að
fylla 82ja sæta flugvél. Ferðin var ekkert auglýst, en þrátt
fyrir það voru 118 manns, sem óskuðu eftir að komast í
ferðina. Margir liættu við að fara, svo einungis tveir menn
voru á biðlista, þegar farið var. Ferðin stóð yfir frá
4. — 13. desember, og kostaði fyrir þá, sem voru í tveggja
manna lierbergjum, kr. 6.200.OO, en nokkru meira fyrir
þá, sem voru í eins manns herbergjum. Ætla má, að ferð
þessi bafi verið um 30% ódýrari en aðrar ldiðstæðar ferð-
ir, sem farnar liafa verið undanfarið á sömu slóðir. Við
nutum mjög góðrar fyrirgreiðslu ýmissa innflytjenda
landbúnaðarvéla og þeirra fyrirtækja sem þeir hafa um-
boð fyrir. Ég vil geta þeirra fyrirtækja, sem aðstoðuðti
okkur á mjög myndarlegan bátt og sýndu Búnaðarfélagi