Búnaðarrit - 01.01.1967, Page 106
98
BÚNAÐARRIT
II. Nautgriparæktin 1966
Fjöldi nautgripa. Þar sem áætlaðar tölur voru birtar í
síðustu starfsskýrslu minni um fjölda nautgripa í árs-
byrjun 1965, er nautgripafjöldi það ár tilgreindur bér í
svigum aftan við samsvarandi tölur um fjölda nautgripa
í ársbyrjun 1966, sem var ])essi samkvæmt gögnum frá
Hagstofu íslands: nautgripir alls 59542 (59751), þar af
kýr 42096 (41344), geldneyti 10501 (10700) og kálfar
6945 (7707). Þannig fækkaði nautgripum lítið eitt á
árinu 1965, einkum kálfum. Vegna lítils heyfengs og að
einhverju leyti vegna innvigtunargjalds, sem innheimt
var af mjólk um nokkurt skeið á árinu 1966, og
hvatningar til bænda um að draga fremur úr mjólkur-
framleiðslu en sauðfjárbúskap, þá var slátrun nautgripa
óvenju mikil haustið 1966. Athugun, sem Kristján Karls-
son, erindreki Stéttarsambands bænda, hefur gert sam-
kvæmt ásetningsskýrslum 1966 og 1965 í allmörgum
byggðarlögum, sýnir, að kúm og kvígum hefur fækkað
um allt að 7%, en athugun þessi tekur til nær 30% af
kúastofni landsmanna.
Mjólkurframleiðslan. Innvegin mjólk í mjólkurbúum
nam árið 1966 alls 101.538.461.9 kg og liafði minnkað
um 4.7% frá fyrra ári. Innvegið mjólkurmagn skiptist
þannig milli mjólkurbúanna:
Innv. mjólk Breytlngar frá 1965
Mjólkurbú: kg kg %
Mjólkurstöðin í Reykjavík . 6.515.830 670.978 7,3
Mjólkurstöðin á Akranesi 397.327 1.212.824
Mjólkursaml. í Borgarnesi . 8.842.216 -*- 220.286 2,4
Mjólkurstöðin í Grundarfirði .. 792.904 -*- 34.212 -f- 4,1
Mjólkursanil. í Búðardal . 2.581.398 38.051 1,5
Mjólkurstöðin á ísafirði . 1.567.952,5 -*- 19.554 -f- 1,2
Mjólkursaml. á Hvammstanga .. . 2.919.397 -*- 242.280 7,7
Mjólkursaml. á Blönduósi . 3.544.101 -*- 141.068 3,8
Mjólkursaml. á Sauðárkróki ... . 6.664.472 -*- 402.969 5,7