Búnaðarrit - 01.01.1967, Page 121
SKÝRSLUR STARFSMANNA
113
ég bændur í Norður-Þingeyjarsýslu á sauðburði. 26. —
27. júní ferðaðist ég um Suðurland með búnaðarmála-
stjóra og Louis Jensen, ráðunaut Grænlendinga, og frúm
þeirra.
Dagana 30. júlí — 2. ágúst var hér liáð ráðstefna sauð-
fjárræktarráðunauta Norðurlanda. Því miður gátu þeir
ekki komið Sjöberg frá Svíþjóð og Inkovaara frá Finn-
landi. En mætt voru til leiks Frederik Andersen og frú,
Danmörku, Torvald Austrud, Noregi og Aly Goldkulil,
Svíþjóð. 30. júlí — 1. ágúst ferðuðumst ég og kona mín
með hinum erlendu gestum til Norðausturlands. Fyrsta
daginn var flogið til Þórshafnar. Þar tóku á móti okkur
á flugvelli Grímur Jónsson, ráðunautur, og margir bænd-
ur úr Svalbarðshreppi. Fyrst var lialdið að Syðra-Álandi
og þar skoðuð fjárhús og fénaður og þegnar veitingar.
Þaðan var haldið að Holti og Laxárdal, fjárhús og fénað-
ur skoðað þar og neytt kvöldverðar. Bændur voru með
okkur allan tímann og samræður fjörugar. Grímur ráðu-
nautur og Árni í Holti óku okkur um öxarfjarðarheiði
til Kópaskers um kvöldið. Næsta dag heimsóttum við
Jóhann Helgason og frú í Leirhöfn og neyttum þar morg-
unverðar. Jóliann sýndi fjárhús, tún, beitilönd og fénað.
Einnig lieilsuðum við upp á Helga Kristjánsson og frú
og skoðuðum bókasafnið og heimilisiðnað Helga og þág-
um þar veitingar. Frá Leirhöfn var lialdið áleiðis til
Mývatnssveitar. Jóhann og frú slógust með í förina, og
óku þeir Jóhann og Grímur fararskjótunum, en Árna
kvöddum við á vegamótum í öxarfirði. Á leiðinni var
skoðað slátur- og frystihús á Kópaskeri, dvalið um stund
í Ásbyrgi og ekið upp með Jökulsá að vestan, við hin
undurfögru gljúfur, sem áin hefur myndað, svo sem
Hóhnatungur og Hljóðakletta, en Dettifoss gamli huldi
sig því miður í svartri þoku. 1 Námaskarði mætti okkur
hrennisteinsfýla og hvinur frá borholum, en Mývatns-
sveitin lieilsaði í björtu veðri. Það var nýveiddur silung-
ur á borðum að Hótel Reykjahlíð, soðinn eftir liendinni,
8