Búnaðarrit - 01.01.1967, Blaðsíða 125
SKÝRSLU R STARFSMANNA
117
Auk sauðfjárræktarfélaganna mun ég annast eftirlit
meS afkvæmarannsóknum og leiðbeina þeim, sem vilja
liefja slíka starfsemi, og er í ráði að reyna að auka liana
til muna. Hlutdeild afkvæmarannsókna í búfjárkynbót-
um þarf að aukast á komandi árum. En til þess að svo
megi verða, þarf að aðlaga þær íslenzkum aðstæðum og
gera þær auðveldar í framkvæmd. Ég lít á það sem eitt
af höfuðverkefnum á komandi árum að vinna að því, að
svo veröi.
Sauðf járræktarfélögin 1964—’65
Sauðfjárræktarfélögin liafa starfað með svipuðum hætti
nú eins og áður. Alls var greiddur styrkur í 98 félög.
Af þeim voru 5, sem ekki sendu skýrslur 1963—’64, en
það voru Sf. „Neisti“ Múlahreppi, A.-Barð., „Prúður“,
Rauðasandslireppi, A.-Barð., Sf. Staðarhrepps, Skaga-
fjarðarsýslu og Sf. Mosfellslirepps og Kjalarneslirepps,
Kjósarsýslu. Þegar þetta er ritað, hafa ekki borizt skýrsl-
ur frá eftirfarandi félögum, sem sendu skýrslur fyrir árið
1963— ’64: Sf. Reykhólahrepps, V.-Barð., Sf. Óspakseyr-
arhrepps, Strand., Sf. Ytri-Torfustaðahrepps, V.-Hún.,
Sf. Seyluhrepps og Sf. „Frosta“ Akrahreppi, Skag., Sf.
Skeggjastaðahrepps, N.-Múl., Sf. Beruneslirepps, S.-Múl.
og Sf. „Eflingu“, Vestur-Skaft.
Þess skal getið, að skýrslur frá Sf. Óspakseyrarhrepps
glötuðust í bruna. Það félag starfar því enn, þótt ekki
liafi borizt skýrslur frá því að þessu sinni.
Það eru því færri félög, sem senda skýrslur fyrir árið
1964— ’65 en 1963—’64, en þá sendi 101 félag skýrslu. Þau
eru 3 færri nú. Þrjú sauðfjárræktarfélög fengu sam-
þykktir staðfestar á árinu.
1. Sf. Skaftártunguhrepps, V. Skaft.
2. — „Akur“, Akureyri
3. — Borgarhrepps, Mýrasýslu.