Búnaðarrit - 01.01.1967, Page 132
124
BUNAÐARRIT
og þakka ég mínum kæru samstarfsmönnum öllum kær-
lega fyrir samveruna og góða samvinnu bæði á ferðum
okkar sem og á sýningunni á Hólum. Við Haraldur
komum saman sýningarskrá, en hann hafði síðan allan
veg og vanda af framhaldsvinnu við verkið. Landsmót
var svo haldið dagana 15.—17. júlí að Hólum í Hjalta-
dal. Tókst það vel í flesta staði. Ég var þó sérstaklega
heppinn og samstarfsmenn mínir við kynbótahrossin, því
aðalsýning þeirra fór fram laugardaginn 16. júlí, og var
veðrið þá frábærlega stillt og fagurt. Fengu þau nú mjög
rúman tíma í dagskránni, eins og ég hafði farið frarn á
við mótsstjórn, og fyrir það er ég mjög þakklátur. Vona
ég, að mótsgestir hafi metið það að liafa gott tóm til að
glöggva sig á kynbótalirossunum, en veit liins vegar, að
þetta var seinlátt fyrir sjálfa sýnendur hrossanna, en þar
á móti kemur, að hross þeirra eru inun betur auglýst, og
þeir fá meiri gagnrýni á lirossin, heldur en ella. Það er
liollt og þroskandi.
Fundir og fleira
Ég missti af miklum annatíma sl. vor, er ég var frá vinnu
um mánaðartíma vegna lasleika. Þá liafði ég ætlað að
koma á nokkra fundi, einkum norðanlands, og einnig
féllu niður merkingar á graðhestum á Norðurlandi, sem
ég liefi alltaf unnið að undanfarin ár.
Ég fræddi um hrossadóma og hrossarækt á námskeið-
um, er L. H. gekkst fyrir í Reykjavík, í Borgarnesi og á
Hellu á Rangárvöllum. Þá sat ég ársþing L. H. í Höfn
í Homafirði 29. og 30. okt. Ég kom á fundi og hélt erindi
í þessum félögum: Gusti, Kópavogi 6. febr.; Sindra, Vík
24. apríl og Sleipni á Selfossi 3. júní. Hinn 26. nóv.
fórum við Gunnar Bjarnason á bændafund í Varmalilíð
í Skagafirði og ræddum lirossarækt og útflutning á liross-
um. Var það mjög fjölmennur fundur og ánægjulegur
fyrir okkur. Ég vænti líka, af góðum undirtektum fund-