Búnaðarrit - 01.01.1967, Page 140
132
BUNAÐARIUT
Er nú nijög að' komast í óefni fyrir Vélasjóði, aðal-
lega fyrir það, að einstaklingar, sem starfrækja skurð-
gröfur, lirifsa beztu verkefnin með ýmsum ráðum, en
Vélasjóður verður að sinna öllum verkefnum, hversu
slærn sem þau eru.
Neyddist vélanefnd til þess í fyrsta skipti á þessu ári
að setja skurðgröfuleigurnar misjafnlega liáar eftir að-
stæðum á hverju ræktunarsvæði, allt að 50% hærri á
vondu landi en góðu, og hefði þurft að vera meiri munur.
Engin dráttarvélanámskeið voru haldin á árinu, enda
ekki um þau beðið af neinum.
3. Utanfarir
Snemma í febrúar fór ég í boði Dráttarvéla lif. í ferð til
Frakklands að skoða skurðgröfuverksmiðjur Poclain
fyrirtækisins; þaðan til Englands í boði Globusar bf. að
skoða J.C.B. verksmiðjuna, sem framleiðir J.C.B. skurð-
gröfur.
Þá fór ég til einnig Wales og skoðaði þar verksmiðju,
sem framleiðir Hymac skurðgröfur. Þá fór ég til írlands
og kynntist þar viðhorfum manna, sem sjá um fram-
ræslu fyrir skógrækt írska ríkisins.
Keyptar voru tvær vökvaknúnar skurðgröfur, ein
Poclain og ein Hymac, og var grafið með þeim í Barða-
strandarsýslu og Strandasýslu. Miklar vinnutafir urðu
vegna bilana á þeim báðnm, en þó náðust góð afköst
ineð Hyinac vélinni í Barðastrandarsýslu, þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika. Með vélum þessum má vinna í miklu
verra landi en með dragskóflum, enda voru þær keyptar
með tilliti til þess, að þær gætu leyst hin erfiðu verkefni
á Vestfjarðakjálkanum.
Nú er bins vegar útlit fyrir það (í bili a. m.k.), að
ekki verði meira úr framkvæmdum með þessum vélum
á Vestfjarðakjálkanum.
Fjárveitingavald ríkisins liefur sem sé neilað að láta