Búnaðarrit - 01.01.1967, Síða 218
210
BUNAÐARRIT
Greinargerft:
Eins og kunnugt er, liafa orðið stórfelldar, tæknilegar
framfarir við jarðvinnslu og ræktun hér á landi á síðustu
árum. Vinnubrögð við þessi störf liafa á ýnisan liátt ver-
ið samræmd með verkfæra- og vélaprófunum Verkfæra-
nefndar. Liggur það því nokkuð ljóst fyrir, hvernig bezt
verður staðið að jarðabótavinnu. Sama er að segja um
vélvæðingu og vinnubrögð við heyskap.
Með aukinni fóðuröflun hefir búfé fjölgað, en ]>ví
fólki, sem annast liirðingu þess, fækkað til muna á síð-
ustu tímum. Hirðing búpenings, fóðrun inni og úti, til-
færsla Iieys úr lieystæðum í jötur, mjaltir, smalanir og
útakstur búfjáráburðar er meginstarf bóndans og tek-
ur til allra daga ársins, að minnsta kosti þar sem kúabú
eru rekin. Breyttir búskaparliættir, meiri innifóðrun,
liafa gert þessi störf að ýmsu leyti umfangsmeiri en
áður var. Það er því augljóst, að aðstaða öll til þessara
starfa hlýtur í mjög veigamiklum atriðum að ráða úrslit-
um um ]>að, livort búskapurinn er arðvænlegur eða ekki
og ekki síður, livort hann er bindandi þrældómur eða hóf-
legt starf. Peningshúsin skipta hér mjög miklu máli. Hin-
ar miklu bvggingar síðustu áratuga yfir liey og búfé hafa
auðveldað ])essi störf bóndans, þó ekki liliðstætt því,
sem gerzt liefir við ræktun og heyöflun.
Teiknistofa landbúnaðarins hefir unnið mikið og þarft
starf fyrir landbúnaðinn með leiðbeiningum um bygg-
ingar. Þó álíta margir, að hún liefði ])urft að hafa rnögu-
leika til að gera meira. Nefnd var skipuð lienni til að-
stoðar í leit að nýjum hugmyndum að hagkvæmari
byggingum og vinnuaðstöðu við áðurnefnd störf, en liún
starfaði aðeins skanima hríð.
Engar skipulegar vinnuathuganir, sem skorið hafa úr
um yfirburði vissra bygginga, liafa farið fram, og vinnu-
brögð við snma þætti þessara starfa eru mjög breyti-
leg, og enginn veit með nokkurri vissu, hvaða aðferð er
liagkvæmust.