Morgunn - 01.06.1922, Side 18
12
MORGUNN
því. Vér urðum að greiða 17 kr. hver fyrir ferðina. Síðar kom
í ljós, að formaðurinn hafði haft öðru að sinna þennan dag.
Alt hafði til þessa verið með hinni mestu spekt og
friðsemi á fundinum. En meðan vér vorum í skemtiferð-
inni, hafði hr. Kortseu látið blaðamann frá »Politiken«
eiga viðtal við sig, og birtist viðtalið í blaðinu á mánu-
dags-morguninn. Mér er óhætt að fullyrða, að sú kurteisi(l)
formannsins kom í meira, lagi flatt upp á alla, hina er-
lendu fundarmenn, er skildu greinina eða létu þýða hana
fyrir sig. Greinin hafði þetta að fyrirsögn: Aande-Kongres-
sen. Formanden for Psylcisk Forslcning, Dr. Kortsen, tager
Afstand. Er gefið í skyn, að þingið muni ef til vill klofna.
Sú fregn gangi, að meðal sumra af hinum dönsku vís-
indamönnum, er til fundarins hafi boðað og eigi gagnvart
almenningi að bera ábyrgð á því(!!), sem gerist þessa dag-
ana í hinum Carlsbersku myrkurbyrgjum, ríki hin mesta
óánægja. Þetta sé spíritista-þing, en eigi ekkert skylt við
vísindi. Auk þess ætli spíritistar að láta halda afarfjöl-
mennan fund næsta. laugardag í íþróttamannahúsinu ogbjóða
þangað mörgum af erlendu sálarrannsókamönnnunum. Þeir
eigi að verða þar ræðumenn. Formaðurinn tók undir það,
að ví8indamennirnir dönsku væru óánægðir. Kvaðst hafa
vænt þess, að erlendu rannsóknamennirnir mundu koma
með miðla sína, t. d frú Bisson með Evu C.; en hún
hefði aðeins komið með ljósmyndir, en slíkt gæti ekki
BÍglt undir nafni vísindanna, »og þeBs vegna verðum vór
að lýsa yfir því, að vér séum þessu ósammála, til þess
að almenningur leiðist ekki afvega«(!!). Kvað hann heppi-
legast, að reynt væri að komast hjá klofning þingsins,
en hinu yrði hann að mótmæla, að spíritistum yrði
leyft að nota sér þingið, eins og stofnað væri til með
laugardagsfundinum í íþróttarnannahúsinu. »Það verður
að halda aftui' af spíritistunum, er þeir reyna að koma
fram með vísindalegum álímingarmiða*, mælti hann.
Að vísu játar hann í viðtalinu, að nokkrir ágætir
ví8indamenn séu meðal fundarmanna, en fer fremur niðr-