Morgunn - 01.06.1922, Síða 28
22
MO KGUNN
Þá flutti og Fritz Grunewald annað erindi sitt: um að
nota vogir, til þess að sanna, að fyrirbrigðin gerist. Hefir
hann fundið upp ágæt áhöld til þess. Er miðillinn luktur
inni i eins konar klefa eða fuglabúri, þar sem veggirnir
eru smágert net — en rétt fyrir framan það stendur
vogin, er hann getur ekki með neinu móti náð til. I sam-
bandi við vogina er rafmagnsábald, sem rissar á blað
sérhverja hræring, er á voginni verður. Nú hefir Grune-
wald notað skygnan mann við tilraunirnar. í fyrstu trúði
hann ekki, að neitt væri að marka, hvað skygni maður-
inn þættist sjá. En svo fór hann að segja til, að nú stæði
»svipur< (eða framliðinn maður) á voginni. Brást þá aldrei,
að rafmagnsáhaldið sagði til um, að einhver ofurlitill
þungi hefði komið á vogina. Láta má og miðilinn sitja á
sams konar vog í klefanum, og kemur þá í ljós, að mið-
illinn léttist að sama skapi sem »svipurinn« (fantómið)
þyngist. Er það alkunnugt frá manngervingafyrirbrigðun-
um, að »8vipurinn« gerir sér stundarlikamann úr efni, er
dregið er út úr líkama, miðilsins (ektoplasma eða tele-
plasma). Eftir að þinginu var slitið, kom eg oft á til-
raunastofu Grunewalds og skoðaði áhöldin, er hann hafði
fiutt með sér til Kaupmannahafnar. Á einum tilraunafundi
var eg með honum, þar sem áhöldin voru notuð. Eru þau
stórkostlega merkileg, og mikið hefði eg viljað óska, að
slík áhöld hei'ðu verið til, meðan Indriði Indriðason var
á lífi. Því að ekki er eg í neinum vafa um, að hann hefir
verið einu af beztu miðlunum, sem enn hafa fundist.
Eftir þennan kvöldfund var eg eltur af fréttaritara
frá »Nationaltidende«, sem áður hafði flutt sérstakt við-
tal við frú Bisson um líkamningar. Nú var eg beðinn að
láta uppi álit mitt um »Spíritismann og kirkjuna* Það
viðtal, ásamt mynd, kom I kvöldnúmeri blaðsins daginn
eftir.
Þá er eg kominn að siðasta fundardeginum (2. sept.).
Þá flutti dr. Gustave Geley annað erindi sitt: um tilraunir
sínar með miðilinn Franek Kluski. Hefir honum tekist að