Morgunn - 01.06.1922, Síða 32
26
M0E6UNN
ráðið meira vanþekking og alkunn ókærni blaðamanna
en illur viiji.
I norsku blaði einu birtUBt greinar eftir próf. Oskar
Jæger um þingið. Veitist hann þar mjög að »Politiken«
fyrir framkomu hennar. Vítir hann einkum, hvernig hún
hafi talað um undirritaðan og þau dr. Schrenck-Notzing
og frú Juliette Bisson. Það er hverju orði sannara, að
það var mjög ósæmilegt, hvernig hún talaði um hin tvö
síðarnefndu, sem eru orðin heimskunn fyrir rannsóknir
sínar. En ummælin um mig voru fremur meinlaus, og
margt sagði Viggo Cavling um mig í blaðinu, sem eg tel
mér til sæmdar og tekjumegin í reikninginn. Beri menn
það t. d. saman við það, er sama blað sagði um dr.
Walter F. Prince, einn ágætasta manninn á fundinum,
eða ura samherja sinn próf. Starcke.
I fundurlok ritaði prófessor dr. phíl. Christian Winter
mjög góða yfirlitsgrein um gerðir þingsins í »Berlingske
Tidende«. Hann hefir einlægan áhuga á rannsóknunum
og er ágætlega nákvæmur vísindamaður. Vona eg hann
eigi eftir að verða leiðtogi danskra sálarrannsóknamanna.
Á slíkum mönnum er brýn þörf, ekki sizt í landi, þar
sem flestir gera spiritismann að trúarbrögöum og gleyma
svo gagnrýninni, sem nauðsynlegri er öllu öðru í þessu
máli.
Auðvitað var alt hjalið um klofning þingsins tóm
endileysa. Samkomulagið var hið bezta, þótt menn væru
ekki allir á sama máli um skýringatilraunirnar. Andmæli
gegn því, að fyrirbrigðin gerðust, komu aðeins frá örfá-
um dönskum háskólamönnum, sem hafa aldrei fengist við
neinar tilraunir, og frá — Faustinusi, sem enginn útlendu
fulltrúanna virti þess að svara honum. Afskifti hans af
málinu eru þektari en svo.
Svo að segja undantekningarlaust létum vér oss nægja,
að segja sem skýrast frá staðreyndunum, en neituðum að
fara. nokkuð út í að skýra frá skoðunum vorum um, hvað-
an þau mundu stafa. Svo var um frú Bisson og svo var