Morgunn - 01.06.1922, Page 33
M 0 fi G U N N
27
um mig. En það þótti einna furðulegast, sem við sögðum
frá. Svo að hér var alls ekki að ræða um spíritisma eða
ekki spíritisma.
Samt var það afráðið að lokum, að hætta við fjöi-
mennisfundinn í Iþróttamannahúsinu, er fræðslufélag eitt
(Psykisk Oplysnings Forening) hafði stofnað til. Er það
hlutlaust fyrirlestrafélag, er reynir að breiða út þekking
á sálarrannsóknunum meðal almenníngs um alla Dan-
mörku. Vegna útlendu fulltrúanna þótti það ekki ráðlegt,
úr því að dr. Kortsen hafði reynt að ófrægja það fyrir-
tæki.
Fyrir þetta félag flutti eg eftir þingið 10 fyrirlestra
(2 í Odense, 2 í Álaborg, 3 í Árósum og 3 í Kaupmanna-
höfn). Þar gafst auðvitað tækifæri til að fara út í margt
fleira og þar sagði eg skýlaust frá skoðunum mínum. En
það kemur ekki þessari fundarskýrslu við.
Enn er þesB ógetið, sem mikla athygli vakti á þing-
inu og um alla Danmörk. Nokkurum af erlendu fundar-
mönnunum var boðið að gera tilraun með danska miðil-
inn Einar Nielsen, þann er getið var í upphafi þessa máls.
Var það mest að þakka góðri framkomu próf. Oskars
Jægers. Urðu tilraunafundirnir tveir. Hinn fyrri var hald-
inn 31. ágúst á heimili stórkaupmanns H. E. Bonne í
Taastrup. Var beðið um, að sex fulltrúar kærau af fund-
inum, og valdi próf. Jæger þessa til: frú J. Bisson, dr.
Schrenck-Notzing, próf Har. Níelsson, próf Oskar Jæger,
docent Th. Wereide og dr. Wetterstad — hinir 3 síðast
nefndu allir Norðmenn. Enn fremur voru þar viðstaddir
Thorson læknir, dr. phil. Willads Christensen, hr. Bonne
og kona hans og nokkurir fleiri vinir þeirra. Fimm mán-
aða hlé hafði orðið á tilraunum með þennan miðil. Áður
en byrjað var, var miðillinn rannsakaður nákvæmlega af
3 manna nefnd og sömuleiðis þau tvö, er sátu næst hon-
um; nefndin rannsakaði og fundarherbergið rækilega. Var
því vandlega læst og það lýst upp með allbjörtu rauðu ljósi.