Morgunn


Morgunn - 01.06.1922, Síða 42

Morgunn - 01.06.1922, Síða 42
36 MORGUNN Unítara og annara. l?ví miður entist honum ekki aldur til að koma málinu í fulla framkvæmd, þótt segja megi, að með uppkasti þeasu hafi því af stokkunum verið hrundið. Og nú er svo komið, að söfnuður síra Friðrika og Uni- tarasöfnuðurinn í Winnipeg hafa sameinast í einn söfnuð, og mikil líkindi eru til þess, að aðrir frjálslyndir söfnuð- ir Islendinga vestan hafs taki höndum saman við hann um kirkjufélagsstofnun. Eins og öllum er kunnugt, hefir nú um langt skeið verið talsvert öflugt kirkjufélag til meðal íslendinga í Vesturheimi. Fyrir viðburðanna rás hefir svo farið, að ýmsum frjálslyndum mönnum hefir ekki litist svo á, sem þeir ættu heima í þeim félagsskap. Þeim hefir fundist jarð- vegurinn nokkuð hrjóstugur og ekki liklegur til mikils andlegs gróðurs Þeir hafa fundið, að það var alveg ó- samrýmanlegt Islendingseðlinu í þeim að láta keyra sig í þá hnappheldu, sem sá félagsskapur hefir orðið. Því hvað sem um Islendinga verður annars sagt, þá er um- burðarlyndisleysið yfirleitt ekki einkennið á þeim. Of- stækið er sá af mannlegum breyskleikum, sem þeim er sízt hætt við. Víðsýnið er sú dygðin, sem þeir vafalaust eiga hægast með að þroska, eins og skynsemin er sú eigindin, sem þeir hafa náð mestum þroska í. Þess vegna er það næata eðlilegt, að þessi nýi frjálslyndi félagsskap- ur þar vestra minni mikið síður á kirkjufélagið gamla en á íslendinga hér heima. Að svo sé, sést einkar greini- lega á safnaðarlögum þessa Sambandssafnaðar í Winni- peg- Sambandssöfnuðurinn hefir enga trúarjátningu í gam- alli merkingu þessa orðs. Til þess liggja vafalaust marg- ar orsakir. En enginn vafi er á því, að þessi nýi söfn- uður hefir í þessu efni lært af íslendingum beggja megin hafsins. Af trúarjátningadýrkun Vestur-íslendinga hefir hann lært, að til þess eru vítin að varast þau. Þá lexíu hafa þeir líka kent mönnum mjög eftirminnilega. Um trúarjátningarnar hefir nú staðið sífeld orrahríð þar í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.