Morgunn - 01.06.1922, Síða 65
MORGUNN
59
deilnanna haldast ekki sem stöðugt ástand. Þau eru
fremur umskiftatímar, sem vér verðum að komast gegnum.
Einn örðugleikinn, sem sumir menn finna til, þegar
um það er að tefla að fá huggun frá sönnununum, er af-
staða kirkjunnar til málsins, og óttinn við það, að þeir
séu að ryðjast inn á hættulegt svið, sem þeim sé bannað.
Eg hefi enga löngun til þess að sueiða hjá sjónarmiði
kirkjunnar; það er sannlega mikilvægt, því að kirkjan
hefir mikil áhrif. En eg verð að halda því fram, að
vísindin geta ekkert hirt um auglýeingatöflur kirkjunnar;
vér verðum að rannsaka alt, sera vér getum, og eg felst
ekki á það, að nokkurt vald geti stíað mönnum frá neinu
rann8Óknar-sviði.
Við og við er komið með þá ásökun, að fyrirbrigðin,
sem vér verðum varir við, séu verk djöfla; og á oss er
skorað að segja, hvernig vér vitum það, að þau séu ekki
ills eðlis. Við því er ekkert annað svar en forna svarið:
»af ávöxtunum«. Eg ætla ekki að fjölyrða um það. Páll
po8tuli hefir samið langa skrá yflr ávexti andans. En
ekki á eg við það, að ekki þurfi neinnar varúðar að
gæta, og að alt, sem stendur í sambandi við þetta mál,
sé að öllu leyti gott. Eg held ekki, að nein starfsemi
mannanna sé að öliu leyti góð. Jafnvel með vísindaiðk-
anir má fara svo, að þær verði illar, eins og vér höfum
8éð nú alt of greinilega í ófriðinum. Alt mannlegt raá
nota vel og illa. Eg verð að koma með alþekt, bragð-
laus sannindi, til þess að svara slíkum mótbárum: Þær
eru oft gersamlega ósamboðnar hinu helga nafni trúar-
innar; það er embættisbragð að þeim. Æðstu prestarnir
voru þess ávalt albúnir að eigna alt Belsebúb, sem gert
var án þeirra staðfestingar. Biskupinn í Beauvais lýsti
yfir því, að raddir Jóhönnu frá Arc væru frá djöflum.
Þetta er mjög gömul ákæra. Þegar litið er á hana í ljósi
sögunnar, er hún í raun og veru alt of miklir gullhamr-
ar. öðru langar mig ekki til að svara henni.
Ef vór 8núum osb að efni skeytanua, sem komið hafa