Morgunn - 01.12.1960, Blaðsíða 54
132
MORGUNN
ar hinna andlegu krafta, og blessunar guðs. Þegar líkam-
i'nn er veikur, fer líkamsstarfsemin úr skorðum. En hin-
ir „kosmisku" geislar, sem streyma gegnum lækninga-
miðilinn, geta komið þessu í lag. Læknarnir nota oft
ýmis konar geisla, t. d. Röntgen, stuttbylgjur og hljóð-
bylgjur. Nú geta hinir andlegu hjálpendur með eins kon-
ar röntgensjón séð gegnum líkamann og beint geislunum
þangað, sem þörf er á, og þessir hjálpendur vita nákvæm-
lega, hve sterkir geislamir eiga að vera og hve djúpt
þeir eiga að ná, og þannig læknað sjúklinginn.
Ralph Trine hefur einu sinni sagt: „Ef þig langar til
þess að halda þér ungum og hressum fram á fullorðins-
ár, þá athugaðu hvernig þú lifir, einnig í hugarheimi þín-
um. Eins og þú hugsar, þannig ert þú og þannig verður
þú, og þú munt komast að því, að hugarrósemi mun hjálpa
einnig líkamlegri heilsu þinni“.
Að endingu vil ég segja nokkur orð viðvíkjandi hinum
ýmsu dæmum, sem ég hef hér greint af sálrænni reynslu
minni. Á dögum Biblíunnar var það álitið bæði heilagt
og fagurt, þegar opinberana varð vart frá æðri veröld,
þegar englar birtust og báru boð til mannanna. Hví skyldi
það ekki vera fagurt, einnig á vorum dögum. Því dyrnar
að eilífðinni eru ekki luktar, ég held jafnvel, að þær sé
opnari en oft áður. Og við, sem höfum fengið hlutverki
að gegna í þessu sambandi, eigum að halda kyndlinum
hátt, svo hann megi lýsa leitandi sálum.
Aftureldingin er í nánd. Mætti þrá mannanna á kom-
andi dögum vaxa, þráin eftir meiri þekkingu á hinum
andlegu lögmálum, svo að þeir gjöri sér ljósari grein
fyrir hinum óendanlega kærleika guðs.
Soffia Haraldsdóttir \>ýddi.