Morgunn - 01.12.1960, Blaðsíða 68
146
MORGUNN
þess, að hann hafði frábæran miðil undir höndum og eins
vegna hins, að hann tók málið vísindalegum tökum.
Justinus Kerner (1786—1862) var vafalaust einn af
fjölhæfustu mönnum aldarinnar. Hann var afburðamikill
læknir, merkilegt ljóðskáld og varð frægur fyrir efna-
fræðirannsóknir sínar og uppfinningar. En þegar hann
hafði unnið sér mikla frægð sem skáld og vísindamaður,
kom hann heiminum að óvörum með því að lýsa yfir því,
að af fyrirbrigðum, sem hann hefði rannsakað hjá sjúkri
konu, er var undir læknishendi hans, væri hann orðinn
sannfærður um tilveru anda og andlegs heims. Þegar
þessi merkilegi sjúklingur, frú Hauffé, var dáin 1829,
gaf hann út bókina, Sjáandinn frá Prevorst, sem vakti
geysilega athygli, ekki sízt vegna þess, hver höfundurinn
var. Heimspekingar og vísindamenn ætluðu að hlægja
málið í hel. Þeir skrifuðu hinar fáránlegustu vitleysur
um Kerner og rannsóknir hans, en hann varði mál sitt
af festu og einurð. Margir merkir menn lögðu leið sína
til Kerners til Weinsburg, meðan frú Hauffé var enn á
lífi og sannfærðust um raunveruleik fyrirbrigðanna, og
meðal þeirra voru nokkrir af gáfuðustu mönnum Þjóð-
verja á þeirri tíð, svo sem þeir Kant, Schubert, Eschen-
meyer, Görres, Werner o.fl. En andstaðan var mikil og
í formála að þriðju útgáfu bókarinnar um frú Hauffé
segir hann: „Vissulega er hart að þurfa að játa það —
hver finnur ekki til þess — að einföld og sjúk kona skuli
verða til þess að kollvarpa lærdómskerfum hinna vitru
manna og staðfesta þá trú, sem hinir stórvitru menn
héldu að þeir væru búnir að útrýma með öllu. En við
þessu finn ég enga aðra huggun en þá, sem Páll postuli
boðar í fyrra bréfi til Korintumanna, 1, 27, er hann seg-
ir: „Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur heimsku,
til þess að gjöra hinum vitru kinnroða. Og Guð hefur
útvalið það, sem heimurinn telur veikleika, til þess að
gjöi'a hinum voldugu kinnroða““.
Áður en Kerner gaf út þessa bók hafði hann undirbúið