Morgunn - 01.12.1960, Blaðsíða 3
Jón Auöuns:
Miðlar, sem mála —
sálfræðileg ráðgáta
★
í 20. árg. MORGUNS birti ég stutta ritgerð um miðla,
sem undir transáhrifum, meira og minna djúpum, hafa
málað merkileg listaverk, þótt annars væru ekki málarar
og gætu sumir ekkert í þá áttina í venjulegu vökuástandi.
Ennfremur birti MORGUNN 1939 hina víðfrægu Krists-
mynd eftir sænsku konuna Berthu Valerius, myndina, sem
kunnust er undir nafninu Friðarhöfðinginn, var máluð á
löngum tíma, en eingöngu undir sálrænum áhrifum, að
því er frúin staðhæfði, og mátti henni vera kunnast um
það.
I sept.—okt. hefti þýzka tímaritsins Neue Wissens-
chaft rakst ég á alllanga ritgerð um þetta efni eftir tékk-
neskan lærdómsmann, dr. Karel Kuchynka í Prag. Úr
henni tek ég flestar frásagnir þessarar ritgerðar, en fer
þó ekki ýtarlega út í skýringar doktorsins á fyrirbrigð-
inu, með því að mér þykir þær sumar hæpnar og einkum
vegna þess, hve mjög hann sneiðir hjá þeirri staðreynd,
að furðulega mörg þessara málverka tjá sig ekki aðeins
framkomin fyrir áhrif látinna meistara, heldur bera og
hin athyglisverðustu einkenni þeirra og verða stundum
naumast af sérfræðingum aðgreind frá myndum þeim, er
þessir meistarar máluðu í lifandi lífi. En það vandamál
verður einnig að leysa, ef gera skal fullnægjandi grein
fyrir uppruna þessara kynlegu fyrirbrigða.
6