Barnablaðið - 01.12.1989, Page 56
56 BARNABLAÐIÐ
AÐVENTU-
KRANSINN
Fjórum sunnudögum fyrir jól
hefst aðventan. Þá kveikir fólk
gjarnan á fyrsta kertinu í aðvent-
ukransinum, sumir syngja jólalög
og borða smákökur.
Orðið „aðventa“ þýðir að eiga
von á eða vænta einhvers. Þá eru
allir að bíða eftir því að jólin gangi í
garð.
Kertin í aðventukransinum eru
fjögur. Þau hafa hvert sína merk-
ingu. Fyrsta sunnudag í aðventu
er kveikt á einu kerti. Það er kallað
spádómakertið vegna þess að
mörg hundruð árum áður en
Jesús fæddist spáðu menn fyrir
um komu hans.
Annan sunnudag í aðventu er
kveikt á næsta kerti, englakertinu.
Fjöldi engla steig niður af himnin-
um, þegar Jesús fæddist og söng
lofsöngva. Þeir sungu: Dýrð sé
Guði í upphæðum og friður á jörðu
með mönnum, sem hann hefur
velþóknun á.
Hirðarnir sem gættu sauðanna
sáu englana, þeir vissu að eitt-
hvað stórkostlegt hafði gerst
þessa fallegu nótt. Þess vegna
heitir þriðja kertið hirðakerti.
Síðasta kertið heitir Betlehem-
kertið. Hirðarnir flýttu sér niður til
Betlehem. Þar fundu þeir Jesú,
liggjandi í jötu. Þeir vissu að alda-
gamlir spádómar höfðu nú ræst,
frelsarinn var í heiminn borinn.
BarnablaNð sendir öllum
lesendum sínum bestu
oq nýdrskve'ójur
jur fieim ___________
blessunar.