19. júní - 19.06.1978, Síða 43
Jafnréttishreyfing síðasta áratugar hefur ýtt
við þessum konum að hugleiða stöðu sína
Ritnefnd 19. júní lék hugur á, að fræðast um ýmis atriði, er til
greina og úrlausnar koma við slit hjúskapar. Varð að ráði, að
leita til SVÖLU THORLACIUS, héraðsdómslögmanns, sem
rekið hefur málflutningsskrifstofu í Reykjavík um nokkurt skeið,
og leggja fyrir hana nokkrar spurningar.
Hver eru helstu skilyrði, sem
fullnægja þarf til að fá skilnað.
Þarf e-a ástæðu til að fá skilnað?
Skilnaður að borði og sæng er
veittur í fyrsta lagi, ef hjón eru
sammála um að leita skilnaðar að
borði og sæng og ber þá að veita
þeim leyfi til slíks skilnaðar, enda
séu þau á eitt sátt um skipan for-
ráða fyrir börnum, um fram-
færslueyri með börnum og milli
hjóna innbyrðis, og að annað-
hvort sé samkomulag um fjár-
skipti eða skiptaráðandi hafi tek-
ið eigur bús til uppskriftar og
skiptameðferðar, þ.e.a.s. að mál-
inu hafi verið vísað til skiptarétt-
ar.
Ef hjón eru ekki sammála um
að æskja eftir skilnaði að borði og
sæng, á annað hjóna rétt á leyfi til
skilnaðar að borði og sæng, ef hitt
hjóna hefur sýnt af sér mikla
vanrækslu á framfærsluskyldum
sínum gagnvart hinu eða börn-
unum, sem því er skylt að fram-
færa, eða ef jjað brýtur a.ö.l. mjög
í bága við skyldur sínar gagnvart
þeim. Sama gildir, ef ósamlyndi
hjóna er orðið svo magnað, að
ekki þykir mega una frekari sam-
vistum, enda skal þá veita skiln-
að, nema ósamlyndi sé aðallega
að kenna leyfisbeiðanda.
Unnt er að fá lögskilnað strax
án undanfarandi skilnaðar að
borði og sæng, ef ákveðnum skil-
yrðum er fullnægt. Sú lagagrein,
sem mest er notuð til þess að fá
lögskilnað strax er 39. greinin í
lögunum um stofnun og slit hjú-
skapar, en þar segir, að hafi ann-
að hjóna orðið bert að hjúskap-
arbroti eða atferli, sem jafna megi
til þess, þá geti hitt krafist lög-
skilnaðar, nema það hafi sjálft
lagt samþykki sitt á veknaðinn,
eða stutt að framgangi hans. Oft
kemur það fyrir, að spurt er um,
hvort ekki sé hægt að fá lögskiln-
að strax, þegar fólki finnst hjóna-
band sitt vera komið í algjöra
rúst, t.d. vegna drykkjuskapar
eða misþyrminga makans. Því er
til að svara, að heimild er til þess í
40. gr. fyrrnefndra laga, þar sem
segir, að ef annað hjóna hefur sóst
eftir lífi hins, eða orðið uppvíst að
misþyrmingum á því eða börn-
unum, þá geti hitt krafist lög-
skilnaðar, enda hafi það ekki lagt
samþykki á verknaðinn eða sjálf-
viljugt stutt að framgangi hans.
Hins vegar verður að segja það
eins og er, að sjaldan eða aldrei
mun hafa reynt á þessa grein og
myndi sjálfsagt verða nokkuð
erfitt í framkvæmd að fá lög-
skilnað eftir henni. Dómsmála-
ráðuneytið, sem veitir lögskilnað
myndi gera mjög strangar kröfur
um sannanir, það myndi fara
fram á að fá læknisvottorð um
misþyrmingar og barsmíð, að
málsaðilar yrðu yfirheyrðir og ef
viðkomandi aðili neitaði sekt
sinni eindregið, væri mjög ólík-
legt, að ráðuneytið myndi veita
lögskilnað.
Auk þess geta hjón fengið lög-
skilnað, ef þau hafa ekki verið
samvistum um ákveðið árabil. Þá
er ástæða til að taka fram, að þó
að lögskilnaðarástæðum sé til að
dreifa t.d. hjúskaparbroti geta
hjón að sjálfsögðu fengið skilnað
að borði og sæng, ef þau kjósa það
heldur.
Skilnaður að borði og sæng/-
lögskilnaður — hver er munur-
inn?
Við skilnað að borði og sæng
Svala Thorlacius.
41