19. júní


19. júní - 19.06.1980, Page 8

19. júní - 19.06.1980, Page 8
konur eigi að koma inn í stjórnmál m. a. til þess að koma með ný viðhorf og það er að segja viðhorf sem áður hefur ekki gætt. Því ef við ekki komum með þessi mál verður haldið áfram að sitja á ýmsum úr- lausnarefnum af þessu tagi. Ég er ekki að segja að við Iyftum neinum Grettistökum en ef við ekki beitum okkur, hver gerir það? Þá er það bara eins og karlmaður komi í viðbót ef konurnar gera þetta ekki heldur. Erna: Er þetta ekki spurning um það hversu langt er gengið að þessu leyti? Rannveig: Segjum að maður kannski kæmi, við skulum segja ein kona inn í hópinn, að í stað þess að segja: „Hér kem ég og hérna ætla ég að fá þessu áorkað,“ — heldur svona hægt og sígandi að fá þau mál í gegn sem okkur öllum finnst varða svo miklu. Til þess að það verði hlustað virkilega á mann verði maður sjálfur að vera búinn að fá vissa viðurkenningu. Dagbjört: Sem sagt bakdyra- megin? Rannveig: Ég veit ekki hvort þetta er bakdyramegin. Mér sýnist bara að þetta þurfi í dag því við verðum að gera okkur grein fyrir þvi að þessi mál sem okkur eru hugstæð, það er búið að hreyfa þeim öllum. Það eru afar fá mál í dag sem hægt er-að taka upp sem ný. Flest eru einhvers staðar í gangi. Það er á okkur að treysta að þau fái meiri hljómgrunn og að meira sé unnið að þeim. Erna: Er þetta ekki líka spurning um að konurnar séu nógu margar? Mér finnst að ein og ein kona í svona nefndum eigi nú ansi erfitt uppdráttar með ákveðin mál sem hún vill berjast fyrir og kannski fær litlar undirtektir með. Við vorum að ræða ólíka reynslu, uppeldi, áhugasvið kvenna og karla. Afleið- ing þessa er m. a. þessi árátta að fólk skiptist í nefndir og mála- flokka eftir kynjum. Eiga karl- menn ekki börn, verða veikir og gamlir? Búa konur ekki í húsum, 6 aka í bil eða strætó — fara með fé? Þarf ekki að fara að hrista upp í þessu? Rannveig: Soffía situr í Félags- málaráði Akureyrar — þar eru eingöngu konur. Ég sit í Félags- málaráði Kópavogs og er nú eina konan og okkur finnst þetta báðurn jafn rangt. Soffía: Það er einmitt þetta sem ég er að segja um skipan fé- lagsmálaráða, að t. d. þar sem ég er nú á Akureyri þar eru eintómar konur. Ég dreg ekki úr þeirra hæfni, en þetta endurspeglar við- horf karlmannanna í stjórnmála- flokkunum gagnvart þessum málaflokki. Þeim finnst hann ekki mikilvægur. Ef þeim fyndist það færu þeir í þessar nefndir sjálfir. Rannveig: Hvað eru margar konur í hafnarnefnd? Soffía: Þar er engin, — engin í byggingarnefnd og engin í skipu- lagsnefnd. Ég er að vísu varamaður í skipulagsnefnd. En í Kópavogin- um? Rannveig: Það er eins og ég sagði meiri hlutinn karlmenn í félags- málaráði sem gæti kannski þýtt að þeir í Kópavogi væru búnir að sjá mikilvægi þeirrar nefndar. En það er engin kona í skipulagsnefnd og byggingarnefnd. Dagbjört: Mér hefur líka virst að konur líti ekki ennþá á það sem eftirsóknarvert að fara í þessar týpisku ,,karlanefndir“ eins og skipulagsnefnd og byggingar- nefnd, eins og þessi mál séu eitt- hvað sem þær hafi ekki með að gera. Það finnst mér alrangt, við þurfum að koma því á framfæri hér og reyna að uppræta þetta hugarfar. Þær eiga heima alls staðar. Þarna kemur líka að þessu af hverju konur eru ekki í þessum nefndum eins og ég reyndar minntist á áðan. Eg veit það að minnsta kosti í því bæjarfélagi sem ég er í, þá reynum við þegar við veljum i nefndir, að finna fólk sem er á einhvern hátt inn í viðkom- andi málefnum og því miður vantar svo oft konur sem hafa þekkingu á ýmsum sviðum svo sem mörgum tæknisviðum. Þær eru inni í félagsmálum, þær eru taldar vita allt um barnaverndarmál o. s. frv. Það er nefnilega viðtekin venja þegar verið er að velja í nefnd að velja fólk sem hefur einhverja þekkingu á hlutunum. Erna: Hvað með samskipti kynjanna þegar komið er út í starfið í pólitíkinni? Það er oft sagt að stjórnmál séu ,,kammertónlist“ fremur en „einleikstónleikar“. Með tilliti til ólíkra aðstæðna, uppeldis o. fl. þarf ekki að fara varlega í of einhliða áherslu á kvennamálin svokölluðu? Gæti slíkt ekki leitt til þess að við hreinlega yfirgöngum samstarfsaðilana í hita baráttunn- ar? Maður hefur orðið var við visst sambandsleysi milli kynjanna og satt að segja hugleitt hvort segja megi að konur og karlmenn tali sitt hvort tungumálið. Soffía: Eg held við þurfum að gæta þess að láta karlmennina ekkert komast upp með að ákveða fyrir okkur hvernig við eigum yfirleitt að taka okkur út. Við eigum að koma fram með það sem við teljum vera nokkurs virði og við höfum fram að færa og fylgja því eftir á þann máta sem við teljum vænlegan til árangurs, en láta ekkert ákveða þetta fyrir okk- ur. Eg er ekkert viss um að það sé neitt eftirsóknarvert að við förum að tileinka okkur einhvern sérstak- an máta sem karlmannaþjóðfélag- ið hefur getið af sér, eða mótað í sinni mynd. Við eigum að koma sjálfar eins og við erum, en vitaskuld tileinka okkur alla nauð- synlega þekkingu og góð og vönd- uð vinnubrögð í hverju máli sem við tökum að okkur. Rannveig: Við megum ekki gleyma því að karlmennirnir eru vanir því í gegnurn tiðina að skipta við aðra karlmenn. Þeir kunna hver á annan og Jaeir skilja hvern annan. Eg held ekki að við tölum annað tungumál, heldur að þeir halda að við gerum það. Dagbjört: Það er náttúrlega auð-

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.