19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 33
Getum ekki gert
kröfur
50 ára hjúkrunarritari (kvk)
Hún kvaðst þiggja laun
samkvæmt sjötta launaflokki
B.S.R.B. Launin væru afskaplega
lág og sér væri ekki kunnugt um að
hjúkrunarritarar gætu nokkurn
tímann komist upp úr þessum
flokki. Þessi starfsstétt væri líka
eingöngu skipuð konum og frekar
eldri konum en hitt. Er hún var
spurð að því, hvernig konur fengj-
ust til að starfa fyrir þessi lágu laun
sagði hún, að i þessu starfi væri
hvorki gerð krafa um vélritunar-
kunnáttu eða sérstaka tungumála-
kunnáttu. Fyrir konur sem hefðu
litla skólagöngu að baki og hefðu
helgað heimilunum krafta sína
væri ekki um auðugan garð að
gresja, er þær vildu hefja störf utan
heimilis. Þessi vinna væri tiltölu-
lega þægileg og konur á hennar
aldri gerðu sér grein fyrir því að
þær væru ekki eftirsóttur vinnu-
kraftur, er þær kæmu út á vinnu-
markaðinn eftir að hafa komið upp
sínum börnum. Þær, sem litla
menntun hefðu, sættu sig við að
taka jafnlágt launuð störf og raun
bæri vitni.
Persónulegir eigin-
leikar skipta máli
Arkitekt (kk)
Kvað starfseiginleika fyrst og
fremst miðast við þekkingu,
reynslu og getu á mismunandi
starfssviðum. Framamöguleika
kynjanna í starfi taldi hann full-
komlega jafna á sínum vinnustað
sem er Borgarskipulag Reykjavík-
ur. Hann taldi vinnustaði sem ein-
göngu væru skipaðir af öðru kyn-
inu ieiðinlega og litlausa. Ekki
Það væri mismunandi að starfa með ein-
staklingum, en það færi eftir pcrsónulcika
hvers og eins en ekki kyrfcrði.
kvaðst hann hafa orðið var við, að
kynferði, aldur eða útlit skipti máli
í samskiptum starfsmanna á sínum
vinnustað. Varðandi viðskipta-
menn kvaðst hann ekki hafa orðið
var við kynjamismun. Yfirmaður
hans er kona og kvaðst hann hafa
reynslu af því að starfa undir stjórn
bæði karlmanns og kvenmanns.
Hann taldi, að persónulegir eigin-
leikar skiptu einir máli en ekki
kynferði- sjálfur kvaðst hann una
vel við hag sinn eins og hann væri í
dag.
31