19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 60
Frá kröfugöngu indverskra kvenna í Nýju Delhí, þar sem farið var fram á strangari refsingar
fyrir kynferðisafbrot og lögregiuvernd til handa konum.
fyrir u.þ.b. einni öld síðan. En
þrátt fyrir allt, sem áunnist hefur,
einkum síðustu fimmtíu árin, þá
virðast fordómar karla, jafnvel
þeirra, sem við teljum vel menntaða
og fágaða, eiga sér djúpar rætur.
Þeim finnst innst inni, að konur
séu þeim óæðri og síðri á einhvern
óljósan hátt. Það sorglega er, að
mörgum konum finnst þetta líka.
Það, sem að líkindum þarf að
koma til, er, að almenningsálitið
breytist í þá átt, að fordómar af
þessu tagi verði taldir svo for-
kastanlegir, að fólk bregðist
ókvæða við þeim, sem láta þá uppi,
þannig að þeir, sem alls ekki geta
losað sig við þá, sjái sóma sinn í að
leyna þeim í það minnsta, á sama
hátt og nú er orðið um Gyðinga-
fordóma víðast hvar á Vesturlönd-
um. Ætli staða kvenna breytist
ekki þá fyrst til batnaðar, þegar svo
er komið.
J. M. G.
"jöfn
foreldraábyrgó!
rádBtefna ad hótel borg
laugordaginn 23. feb. 1980.
KVEINIPÉTTINOAFÉLAQ ÍSLANDS
HallveigerBtödum Túngötu 14
'IO'I Reykjavik
Ritið ,Jöfn foreldraábyrgð“ fæst á
skrifstofu KRFl að Hallveigar-
stöðum.
Alls staðar með siðuðum þjóð-
um er afbrotið nauðgun talið mjög
gróft afbrot og hér á landi hefur
það verið lýst refsivert allt frá
þjóðveldisöld. En um þetta brot
hefur næsta lítið verið skrifað af
fræðimönnum t.d. á Norðurlönd-
um, ef mið er tekið af skrifum um
önnur brot gegn hegningarlögum.
Rannsóknir og kannanir varðandi
afbrotið nauðgun, sem gerðar hafa
verið, hafa að mestu lotið að
fremjendum þess, fremur en að eðli
brotsins og aðstæðum við glæpinn
eða að þolendum nauðgunar. En
við afbrotið er brotið á þeim
persónulegu réttindum, sem hverj-
um manni eru viðurkennd í lögum,
þ.e. þeim réttindum, sem eru svo
nátengd andlegu eða líkamlegu lífi
manna, að þau verða ekki frá því
greind. Til þessara réttinda telst
m.a. réttur manna á líkama sínum,
lífi, til æru sinnar og tilfinningalífs.
Ritgerðin fjallar aðallega um
afbrotið sjálft, réttindabrotið og
málsmeðferð nauðgunarmála og
reyni ég þá að benda á atriði, sem
hana varða og eru gagnrýni verð
m.a. í dómaframkvæmd.
Er'fitt er að gera grein fyrir efni
ritgerðarinnar í stuttu máli en þess
skal getið, að það stendur til m.a.
að taka á þessu efni i blaði laga-
nema Ulfljóti á næstunni og verður
ritgerðin birt þar ásamt skrifum
m.a. Hildigunnar Ólafsdóttur, af-
brotafræðings um þetta efni.
Hugtakið nauðgun. Samkvæmt
I94.gr, almennra hegningarlaga
nr. 19/1940 er það nauðgun, er
kvenmanni er þröngvað (il hold-
legs samræðis með ofbeldi eða
frelsissviptingu eða með því að
vekja henni ótta um líf, heilbrigði
eða velferð hennar sjálfrar eða ná-
58