19. júní


19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 71

19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 71
lögin út um landið. Er það von stjórnar að landsfundurinn verði fjölmennur og árangursríkur. Ráðstefna með konum í sveitar- stjórnum verður haldin í beinu framhaldi af landsfundi, 25. 26. október og gefst landsfundarfull- trúum kostur á að taka þátt í henni. I stjórn Kvenréttindafélagsins eiga nú sæti eftirtaldir félagsmenn: Sólveig Ólafsdóttir, formaður. Berglind Asgeirsdóttir, varafor- maður, Esther Guðmundsdóttir, Guðrún Sigr. Vilhjálmsdóttir, Jónína M. Guðnadóttir og vara- menn eru Ásthildur Ketilsdóttir, Gestur Ólafsson og Júlíana Signý Gunnarsdóttir. Auk þess eiga sæti í stjórninni kosnar á Landsfundi til fjögurra ára: Brynhildur Kjartansdóttir, Gerður Steinþórs- dóttir, Guðrún Gísladóttir og Kristín Guðmundsdóttir auk varamanna. Maí 1980, S.Ó. Svava Framh. af bls. 17. margvíslegustu málum, ekki ein- göngu sínum eigin heldur annarra, og svo auðvitað ríkisstjórnarfrum- vörpum. Þingmaður kemst því ekki hjá því að afla sér margvís- legrar þekkingar. 4. — Óhjákvæmilega fannst mér stundum að ég sæti ekki þarna sem einstaklingur, heldur sem fulltrúi „kvenþjóðarinnar“ í landinu. Þessi hugsunarháttur gerir það að verkum að það kemur í hlut kvenna að vinna að svokölluðum „kvennamálum“ eða svo að ég noti orðalag Vilborgar Harðardóttur: „málum sem karlmenn vanrækja“. Hins vegar vil ég taka skýrt fram að ég hef aldrei fyllst leiða eða minnimáttarkennd yfir að eiga frumkvæði að eða vinna að svo- kölluðum „kvennamálum“. Eg hef orðið vör við að sumar ungar konur nú til dags vilja ekki heyra minnst á orðið „kvenfrelsi“ og vilja helst trúa því að ein þjóð búi í þessu landi. Slíkur hugsunarháttur er ef til vill eðlilegur meðan félagslega vitund skortir. Hinir kúguðu vilja jú samsama sig herraþjóðinni, en það kemur að því að hinir kúguðu reka sig á vegg og uppgötva að tvær þjóðir búa í þessu landi, karlar og konur. Þá kemur í ljós að það hefnir sin að hafa ekki háð samfellda kvenfrelsisbaráttu. 5. — Eg vildi óska að ég gæti svarað þessari spurningu hiklaust játandi, því með starfi mínu að svokölluðum kvennamálum á þingi, hef ég þóst vera að greiða leiðina fyrir fleiri konur til starfa. En því miður er enn litið svo á að kona eigi að koma í staðinn fyrir konu, en að fjölga þeim, nei, guð hjálpi mér! Þó held ég að flestar konur séu áræðnari og öruggari nú en fyrir 10—15 árum og óhræddari við að berjast fyrir sjálfar sig. 6. — Hugsanlega með breyttum kosningalögum t.d. persónu- bundnari, skyldu stjórnmálaflokka til að bjóða konur fram og svo síð- ast en ekki síst, auðvitað með því að kjósa þær sem í framboði eru. Frá Kvenréttindafélagi Islands Dagana 30. 8. — 2. 9. sl. var haldinn í Kaup- mannahöfn fundur Sambands norrænna kvenrétt- indafélaga (NKS). Slíkir fundir eru haldnir á 3ja ára fresti til skiptis á Norðurlöndunum. Fulltrúar að þessu sinni voru frá Finnlandi, Sviþjóð, Noregi, Danmörku, Færeyjum, Islandi og Grænlandi. Aðalumræðuefni fundarins var: „Hlutdeild kvenna í stjórnun þjóðfélagsins." Flutt voru erindi og af ræðumönnum má t. d. nefna Ritt Bjerregaard fyrrverandi menntamálaráðherra, Bente Hansen rithöfund og Else Marie Kjerkegaard fram- kvæmdastjóra Jafnréttisráðs, sem allar eru frá Dan- mörku. Voru málin síðan rædd í starfshópum og almennum umræðum. I lok fundarins var samþykkt svohljóðandi ályktun: „Norrænu kvenréttindafélögin telja það vaxandi ógnun við frelsi og lýðræði hversu ójafn hlutur karla og kvenna er við ákvarðanatöku alls staðar á Norð- urlöndum. Ekki verður lengur þolað, að karlar einir taki allar mikilvægar ákvarðanir í þjóðfélaginu, heldur skulu þær teknar jafnt af konum sem körlum.“ Vegna kosninga, sem nú fara í hönd hér á landi, þykir stjórn KRFÍ sérstök ástæða til að koma á framfæri upplýsingum um hlut kvenna á þjóðþing- um og i ríkisstjórnum á Norðurlöndum: Land Þjóðþing Ríkisstjórn Svíþjóð 26.4% 25.0% Finnland 26.0% 11.8% Noregur 23.9% 12.5% Danniörk 17.1% 14.3% Færeyjar 6.2% 0.0% Island 5.0% 0.0% Ofangreindar tölur sýna hve hlutur kvenna á Al- þingi Islendinga er smánarlega 1 till miðað við hin Norðurlöndin. KRFl skorar á kjósendur og stjórnmálaflokka að velja konur i örugg sæti á framboðslistana í komandi kosningum. Stjórn Kvenréttindafélags íslands. 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.