19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 55
1. RÓT II. 1978. Offset—
lotógrafía.
Með þessari rót sem berst
við að halda velli túlkar Jó-
hanna baráttu náttúrunnar á
móti vélrænu þjóðfélagi
sem svífst einskis þegar
maðurinn og náttúran á í
hlut. Rótin tekur á sig
mannsmynd, því ef náttúr-
unni er ógnað er einnig
manninum ógnað. Þetta
þarf ekki endilega að vera
bölsýnismynd, rótin er sterk
og þróttmikil, kannski sigr-
ar hún með tímanum.
1. Sjálfsmynd með mömmu. 1972. Olíu-
málverk.
,,Ég hef gaman af því að mála manneskjur,
gjarnan fleiri í sömu mynd og reyna að fá
fram tengsl og samspil milli þeirra innbyrðis
og umhverfisins. Ég hef málað margar
sjálfsmyndir, það er oft erfitt að fá fólk til að
gefa sér tíma til að sitja fyrir. Sumum finnst
ég sýna sjálfa mig full hörkulega og grimma
í þessum sjálfsmyndum, en það er ákaflega
Þreytandi að brosa lengi á móti sjálfum sér í
speglinum. Hér hef ég málað okkur mömmu
saman. Ég er oft spurð að því hvort það hafi
háð mér í minni list að eiga foreldra sem
éaeði eru listmálarar. Ég hef aldrei fundið
*yrir því, þvert á móti hefur það verið mér
oiikil örvun og styrkur."
2. Tómatar og eggaldin. 1974. Olíumálverk.
„Ég mála allt sem vekur áhuga minn, hef gaman að því að mála stórar og flóknar
uppstillingar með mörgum hlutum og glíma við að fá þessa hluti til að falla inn í sterka
og samofna heild."