19. júní


19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 62

19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 62
Björg Einarsdóttir. Foreldraleyfi vegna barnsburðar — Fæðingarorlof Umsögn KRFÍ um breytingar á almannatryggingarlögum Óhætt mun að segja, að allt frá stofnun Kvenréttindafélags Is- lands árið 1907 hafi forystumenn þess beint starfi sínu að stórum hluta að málefnum fjölskyldunnar. Markmið KRFÍ eru að vinna að jöfnum rétti kvenna og karla á öll- um sviðum samfélagsins og mönn- um hefur verið ljóst frá upphafi, að vettvangur fjölskyldulífs er ekki síður mikilvægur en vinnu- markaðurinn. Þegar á fyrsta starfsári hóf félagið að vinna að „frumvarpi til laga um réttindi óskilgetinna barna og mæðra þeirra“ og á vegum KRFI var Mæðrafélagið stofnað 1942 og beitti það sér mjög fyrir málefnum mæðra og barna þeirra. Afgerandi þáttur í þessu sam- hengi er, hvernig búið er að for- eldrum og börnum þeirra á tíma- bilinu kringum barnsfæðingu. Leyfi til að taka frí frá störfum við barnsburð hefur verið tryggt í ís- lenskum lögum frá fyrstu tíð og má þar t.d. minna á ákvæði í Grágás og Jónsbók. Lög um almannatryggingar voru sett árið 1946 og voru þá þegar ákvæði varðandi barnsburð í þeim lögum. Launþegahreyfingin og áhugamannasamtök hafa látið málið til sín taka og á Alþingi hafa verið flutt frumvörp, þingsálykt- unartillögur og samþykktir gerðar. Staðan nú er sú, að stór hluti kvenna nýtur fæðingarorlofs að einhverju leyti, enda þótt misrétti sé mikið eftir því, hvort í hlut eiga starfsmenn hins opinbera eða aðrir. Ennfremur eru stórir hópar kvenna, sem engan rétt hafa að þessu leyti s.s. námsmenn, laus- ráðið fólk, heimavinnandi o.fl., og er of langt mál að fara nánar út í það hér. Fyrir Alþingi lá í vetur frumvarp til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 67/1971 með síðari breytingum. Helstu nýmæli, er fram komu í frumvarpinu voru, að nú skulu allar konur, sem lögheimili eiga á Islandi, njóta orlofs í 3 mán. við barnsfæðingu og að faðir getur að ósk móður tekið orlof síðari hluta tímans. Ennfremur að foreldri, sem ekki er á launum, getur sótt greiðslur sínar til Tryggingastofnunar rik- isins sem svarar fullum sjúkradag- peningum einstaklings. Foreldri sem nýtur launa skal fá greitt sem svarar dagvinnulaunum meðan á orlofinu stendur og fá þau laun greidd hjá atvinnuveitanda sínum, sem síðan á endurkröfurétt á Tryggingastofnun ríkisins sem svarar sjúkradagpeningum. Ú.treikningar i greinargerð með frumvarpinu sýna, að fullir sjúkra- dagpeningar eru u.þ.b. 1/3 hluti af meðaldagvinnulaunum lágtekju- fólks. Atvinnurekandi, sem hefur konu í starfi, er tekur fæðingar- orlof, verður því fyrir fjárútlátum hennar vegna umfram annað starfsfólk. Það þýðir í raun, að konur á barneignaaldri geta orðið dýrari vinnukraftur en annað fólk og þær þess vegna átt undir högg að sækja um atvinnu, kaup og kjör. Ýmsir hafa látið frá sér athuga- semdir við frumvarpið og um- sagnir. Flestir hafa varað við af- leiðingum af þeirri greiðslutil- högun, sem lögð er til og bent á, að í henni felist ógnun við stöðu kvenna á vinnumarkaðinum. Sérstök ástæða er til að vekja at- hygli á umsögn Jafnréttisráðs, ályktun formannafundar Kven- félagasambands íslands og um- sögn KRFl, sem birtist hér í heild: „Stjórn KRFl fagnar því, að gert skuli ráð fyrir, að allir for- eldrar á vinnumarkaði eigi rétt til töku launaðs fæðingarorlofs og að foreldrar í ólaunuðu starfi fái greidda fæðingardagpeninga. Verður að telja 3 mánuði algjört lágmark i þessu sambandi. I frumvarpinu stendur, að fæðingarorlof skuli skilyrðislaust hefjast a.m.k. einni viku fyrir áætlaðan fæðingardag. Þetta telur stjórn KRFÍ of fast skorðað, þar sem algengt er að slíkri áætlun skeiki allt að mánuði til eða frá, og að margar konur geta og kjósa að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.