19. júní


19. júní - 19.06.1980, Page 41

19. júní - 19.06.1980, Page 41
Engir fordómar gagn- vart starfsvalinu ... — rætt við nema í hjúkrunarfræðum Berglind ÁsgeirsdóUir. Jón Karlsson, þriðja árs nemi í Hjúkrunarskóla Islands er einn fjögurra karlmanna, sem nú stunda nám við skólann. Hjúkr- unarfræðingastéttin er ennþá mestmegnis skipuð kvenmönnum, en Jón verður væntanlega tólfti karlmaðurinn sem útskrifast sem hjúkrunarfræðingur frá H. S. í. Er 19. júní hafði fengið Jón til að samþykkja smáviðtal, var fyrsta spurningin eðlilega sú, hvenær hann hafði fengið áhuga fyrir þvi að læra hjúkrun. Hann svaraði því til, að slíkt hefði aldrei hvarflað að sér fyrr en eftir að hann hóf störf við Kleppsspítalann. Þar starfaði Jón í tæpt ár. Hann hafði lokið stúdentsprófi og var því inntur eftir því, hvers vegna H. S. í. hefði íremur orðið fyrir valinu en lijúkr- unarfræðinámsbrautin við Há- skóla Lslands. Jón kvaðst hafa verið kunnugri náminu við H. S. 1., þar sem hann hefði kynnst ýmsum úr skólanum er störfuðu á Klepps- spítalanum, auk þess sem hentugra hefði verið fyrir sig að hefja nám unt áramót, en slíkt var ekki mögulegt við Háskólann. Jón sagðist lítið sem ekkert hafa orðið var við fordóma gagnvart því að karlmenn fengjust við lijúkrun- arstörf. Slíkt viðhorf væri alls ekki til innan H. S. í. og ættingjar og vinir hans hefðu ekki látið neitt slíkt i ljós er hann lét uppi fyrir- ætlanir sínar. Sjúklingar virtust yfirleitt ekki láta sig neinu skipta hvort hjúkrunarfræðingurinn væri karlmaður eða kvenmaður. Hann þekkti að vísu nokkur dæmi þess að sjúklingar hefðu óskað eftir unt- önnun hjúkrunarfræðings af sama kyni og það sjálft. Slíkt ætti sér einkum stað jjegar sjúklingurinn ætti við sjúkdóma að stríða sem væru jDeim viðkvæmt mál, eins og til dæmis sjúkdómar i eða tengd- um kynfærum. Slíkt jafnaði sig joví upp. Aðspurður kvaðst hann hafa heyrt einstaka menn segja, að kon- ur væru betur fallnar til hjúkrun- arstarfa heldur en karlmenn, j:>ar sem j)ær væru nærfærnari. Hann kvaðst ekki geta fallist á þetta. Störf hjúkrunarfræðinga væru svo margháttuð og reyndu á svo marga jnætti í fari einstaklingsins að hann teldi þessa kenningu alls ekki standast. Eins og áður var getið hefur karlmönnum fjölgað mjög hægt innan hjúkrunarfræðingastéttar- innar og var Jón inntur eftir jtví hvaða skýringar hann hefði á j^essu. Hann kvaðst einkum álíta að ástæðurnar væru tvenns konar. í fyrsta lagi teldu margir að hjúkr- un væri kvennastarf. I öðru lagi væru launin fremur lág, miðað við aðra launþega með svipað nám að baki. Sjálfur hefði hann töluvert velt fyrir sér hver væri skýringin á jjví, hvað Jiessi stétt væri lágt launuð og hallaðist einna helst að joví, að sú staðreynd að stór hluti hjúkrunarfræðinga væri aðeins í hlutastarfi réði þar mestu. Launin skiptu jjessa hjúkrunarfræðinga oft ekki miklu máli þar sem önnur fyrirvinna væri á heimilinu. Þetta hefði síðan þær afleiðingar að kjarabarátta hjúkrunarfræðinga væri ekki nægilega mikil. Er Jóni var bent á þá kenningu, sem ýmsir halda fram, að launahækkanir næðust fremur í svokölluðum hefðbundnum „kvennastörfum“, þegar karlmönnum fjölgaði stétt- inni, kvaðst hann hafa heyrt þessu haldið fram. Tíminn yrði hins vegar að leiða það í ljós, hvort slíkt ætti sér stað í hjúkrunarfræðinga- stéttinni. Hann benti á það, að hér á landi Framh. á bls. 43. 39

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.