19. júní - 19.06.1980, Blaðsíða 43
Fimm stúlkur hafa valið
húsgagnasmíðina
Þegar Lára, Sigríður og Jóhanna
settust í Iðnskólann, voru þar þeg-
ar fyrir tvær stúlkur, sem höfðu
valið sér húsgagnasmiði.
„Fólk rak alltaf upp stór augu,
þegar það var að forvitnast um
það, hvað maður gerði. Sumt var
alveg gáttað, en flestir hafa verið
mjög jákvæðir,“ segir Sigríður.
„Það héldu allir að við værum í
hárgreiðslunámi,“ segir Lára.
Allar eru þær sammála um að
þær gefi strákunum ekkert eftir í
faginu. Nú er tæknin orðin svo
mikil á verkstæðum að það þarf
enga sérstaka krafta til að geta
staðið sig í starfinu.
„Auðvitað Jjurfum við að reyna
töluvert á okkur, t. d. þegar maður
er með stærðar borðplötu. Það þarf
að koma henni upp í vélina, en það
hefur hingað til ekkert staðið í
veginum,“ segir Lára.
Hún segist hafa orðið vör við
það, að ef hún er með rispu ein-
hvers staðar, telji fólk það víst, að
hún hafi meitt sig á t. d. sporjárn-
inu.
„Það trúir því ekki að við ráðum
fullkomlega við þetta og álitur
okkur fara klaufalega að,“ segir
hún.
Jóhanna kannast einnig við
þetta og segir að hún hafi eitt sinn
dottið og meitt sig á skíðum, en þá
hafi sporjárninu umsvifalaust ver-
ið kennt um og enginn vildi trúa
því að óhappið hefði komið fyrir í
skíðaferð.
F ramhaldsnám
Lára ætlar sér að starfa á verk-
stæði í Noregi í sumar. Hún sagði
að það hefði verið auðvelt að fá
starf og hún hefði getað valið á
milli verkstæða, sem hefði frá 7 og
upp í 200 manns í vinnu.
„Ég hef mikinn áhuga á því að
fara í framhaldsnám og þá get ég
vel hugsað mér að fara í arkitekt-
úr,“ segir Lára.
Jóhanna ætlar sér að læra eitt-
livað meira, en hefur ekki gert upp
hug sinn ennþá, en arkitektúrinn
komi vel til greina.
Þær Lára og Sigríður ljúka
sveinsprófinu aðeins 18 ára gaml-
ar, svo nægur tími ætti að vera til
að hugsa sinn gang og skipuleggja
framhaldsnámið.
41