19. júní


19. júní - 19.06.1980, Side 49

19. júní - 19.06.1980, Side 49
frelsið konur — rætt við Þórhildi ^orleifsdóttur leikstjóra og Tinnu ^unnlaugsdóttur leikara um Smalastúlkuna og útlagana Á 30 ára afmæli Þjóðleikhússins nýlega var frumsýnt leikritið Smalastúlkan og útlagarnir eftir Sig- urð Guðmundsson málara og Þor- geir Þorgeirsson. Þorgeir hefur breytt efnisskipan og stytt verkið, en um verulegar efnisbreytingar frá hinu upphaflega leikriti Sig- urðar er ekki að ræða. Sigurður málari var frumkvöð- ull í menningarmálum og er getið við fjölmargt, sem horfði til fram- fara i þeim efnum í Reykjavik á árunum 1858—1874, en einkum vann hann ósleitilega að leiklistar- málum og gerði jafnvel tillögur um j,nationala scenu“ í Reykjavík. Á þeim árum starfaði í bænum svo- uefnt Kvöldfélag, en það var félag menntamanna, karla að sjálfsögðu, sem fjölluðu urn ýmis framfaramál á fundunt sínum, m. a. um kven- frelsi og jafnrétti kynjanna, og tók Sigurður mikinn þátt í umræðum um þau mál á félagsfundunt. Athygli hefur vakið, hvernig Sigurður fjallar um konur í leikrit- inu. Ein höfuðpersóna verksins er kona og konur koma ekki síst boð- skap þess á framfæri. Leikurinn er látinn gerast um siðskipti og er ádeila á ofurvald og siðspillingu kaþólsku kirkjunnar og kúgun auðs og valds almennt um leið og hann er lofgjörð um ástina, frelsið og einfalt, óspillt líf. Helga smalastúlka er tákn hreinleikans og hinnar „saklausu ástar“, en þau Grímur, útlaginn ungi, fella hugi saman. Móðir hans, Sigríður, sem hafði á sínum tíma neitað að lúta vilja foreldra sinna, er vildu gifta hana til fjár, var neydd í klaustur að undirlagi Steinvarar, móður sinnar. Hún flúði þá til fjalla með ástvini sínum og lést þar vegna harðréttis. Þessar konur, Sigríður og Helga, eru full- trúar frelsis og óspilltrar ástar, en Steinvör og príorissan eru grimmar og spilltar. Til að spjalla örlítið um þessar áhugaverðu kvenlýsingar náði 19. júní tali af þeim Þórhildi Þorleifs- dóttur, sem setti leikritið á svið, og Tinnu Gunnlaugsdóttur, en hún fer með hlutverk Helgu. Tveggja kvenna tal um Smalastúlkuna og útlagana 47

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.