19. júní - 19.06.1980, Page 50
Þær Þórhildur og Tinna sögðu,
að þáttur kvenna í leiknum væri
óvenjustór, en lögðu áherslu á, að
verkið snerist ekki fyrst og fremst
um félagslegan vanda kvenna,
heldur fjallaði almennt um kúgun
smælingja, uppreisn þeirra gegn
valdastofnunum og frelsi einstakl-
ingsins í víðasta skilningi. Tinna
benti á, að athyglin, sem verkið
beindi að konum, ætti rætur að
rekja til þess, að Sigurður hefði
haft ríka samúð með smælingjum
og meðal þeirra væru konur verst
settar.
Hvað varðaði lýsingar príoriss-
unnar og Steinvarar væri á hinn
bóginn um að ræða konur, sem
komist hefðu til auðs og valda og
beittu sér í krafti þess. „Verkið
sýnir, að auður og völd geta spillt
konum engu síður en körlum,“
sagði Þórhildur.
En hvað um grimmd Steinvarar
gagnvart dóttur sinni?
Þórhildur taldi vísast, að hún
væri merki um bælda óánægju
móður, sem hefði gifst til auðs og
byggi í ástlausri sambúö. Hún
hefði beygt sig undir ok auðs og
valds, en alþekkt væri, að hinn
kúgaði vildi kúga aðra, fengi hann
aðstöðu til þess.
Lýsir þá verkið hvergi stöðu
kvenna og vandamálum sérstak-
lega?
Þessu svaraði Þórhildur: ,Jú,
grimmileg örlög Sigríðar eru fyrst
og fremst vandi konu, enda segir
hún sjálf í leiknum, að konur séu
verr settar en hundtíkur. Þegar
stofnað var til hjónabanda af for-
eldrum í hagsmunaskyni, eins og
algengt var í eina tíð, kom það
jafnan harðar niður á dætrum en
sonum.“
En á lýsingin á ömurlegum
örlögum Sigríðar erindi til áhorf-
enda á okkar tíð
Þær Tinna og Þórhildur voru á
einu máli um það. Tinna benti á
hlutskipti kvenna í Indlandi til
samanburðar og Þórhildur taldi,
að hjónabandið væri þrátt fyrir
breytingar á þjóðfélagsskipan enn
sem fyrr efnahagsleg kjölfesta fyrir
konur.
Á einum stað í leikritinu segir
Sigríður: „Ég er viss um að annað
eða þriðja hvert stúlkubarn væri
borið út, ef lögin ekki bönnuðu
slíkt.“ Hvernig ber að skilja þessi
orð?
Þessu svaraði Tinna: „Stúlku-
börn töldust áreiðanlega ekki eins
æskileg og sveinbörn og það á við
enn í dag. Metnaður foreldra er að
eignast son, enda binda þeir miklu
meiri vonir við syni en dætur.“
Þórhildur bætti við, að hægt væri
að fá skorið úr um kyn fósturs með
legvatnskönnun, og að fóstrum
væri frekar eytt, ef könnunin sýndi
að þau væru kvenkyns, að því er
erlendar rannsóknir bentu til.
Má ekki segja, að afstaða Sig-
urðar til griðkonunnar Möngu ké
tvíbent? Hann hefur samúð með
Framh. á bls. 70.