19. júní - 19.06.1980, Page 65
sveitarstjórnir og ríkisvaldið. Mörg
atriði varðandi tryggingamál hafa
komið til kasta ráðsins. Við kosn-
ingar til alþingis og sveitarstjórna
hefur ráðið látið frá sér fara áskor-
anir til stjórnmálaflokka um að
hlutast til um, að konur sem karlar
skipi framboðslistana.
4. kafli fjallar um jafnréttis-
nefndir og eru opinberar nefndir
taldar upp, en vitað er að ýmis
félagasamtök hafa slikar starfs- og
ráðgefandi nefndir. 5. kafli er um
störf Ráðgjafanefndarinnar og
kemur fram að hún beinir starfi
sínu einkum að fræðslu-, fjölmiðla-
og fjölskyldumálum. Nú er unnið
að gerð bæklings á vegum nefnd-
arinnar þar sem aðallega er tekið
mið af barninu sem þjóðfélags-
þegni og er bæklingurinn einkum
ætlaður verðandi foreldrum og
foreldrum smábarna.
„Samstarf við Norðurlönd“
heitir 6. kafli og segir þar (bls. 77):
„Á öllum Norðurlöndum eru
opinberar nefndir eða ráð, sem
hafa það verkefni að vinna að
jafnrétti og jafnri stöðu karla og
kvenna. Ráðin eru mismunandi
samansett og hafa mismunandi
góða aðstöðu, en tilgangurinn hjá
þeim öllum er sá sami“.
Á fundi Norðurlandaráðs í
Reykjavík í febrúar 1975 var þeim
tilmæluin beint til ráðherranefnd-
ar Norðurlandaráðs, að hún
stofnaði samstarfshóp með einum
tengilið frá hverju landanna til að
samræma aðgerðir í jafnréttis-
málum og vera ráðgefandi fyrir
ríkisstjórnirnar.
Fyrsti fundur samstarfshópsins
var 10. apríl 1975, en fulltrúi
Islands var ekki valinn fyrr en
síðar. Var það Auður Auðuns,
fyrrv. ráðherra og sat hún fyrst 3ja
fund hópsins 29. sept. 1975. Eftir
stofnun Jafnréttisráðs hér á landi
1976 taldi Auður rökrétt að for-
maður þess ætti sæti í norræna
samstarfshópnum og vék úr hópn-
um í árslok 1976, en Guðrún
Erlendsdóttir tók sæti hennar.
Þegar Guðrún lét af formennsku
Jafnréttisráðs 1979 óskaði hún, á
sama hátt og Auður, að víkja fyrir
nýkjörnum formanni ráðsins,
Guðríði Þorsteinsdóttur, og til-
færði bréflega til ráðherra sömu
rök og fyrirrennari hennar. Núver-
andi félagsmálaráðherra, Svavar
Gestsson, hefur nýverið skipað
Svövu Jakobsdóttur, fyrrv. al-
þingismann, fulltrúa íslands í
þessum norræna samstarfshópi um
jafnréttismál.
Á hinum Norðurlöndunum
tíðkast það, að formenn jafnréttis-
ráða eða framkvæmdastjórar ráð-
anna séu fulltrúar síns lands í
hópnum og helgast það af því, að
þeir hafa mesta möguleika á að
fylgjast með framgangi mála á
þessu sviði.
7. og seinasti kafli i skýrslu
Jafnréttisráðs er um fjárhag ráðs-
ins og kemur þar fram, að fjár-
veiting til starfseminnar er af mjög
skornum skammti. Bergþóra Sig-
mundsdóttir, þjóðfélagsfræðingur,
hefur verið framkvæmdastjóri
ráðsins frá upphafi og oftast ein að
störfum í skrifstofunni. Undrun
vekur, við lestur skýrslunnar
hversu miklu hefur verið komið í
verk, þrátt fyrir lítinn mannafla og
næstum algert fjársvelti. Vandséð
er, hvað stjórnvöldum gengur til,
annars vegar að setja lög um svo
mikilsvert mál sem jafnréttismálin
eru og raunar allir stjórnmála-
flokkar segjast hafa á stefnuskrá
sinni að framfylgja, en halda síðan
að sér höndum um alla fram-
kvæmd.
Skýrsla Jafnréttisráðs fyrir árin
1976—1979 er mjög fróðleg, opnar
sýn á málaflokk, sem því miður
hefur verið of lítill gaumur gefinn.
Hér skulu að lokum tilfærðar
nokkrar setningar af bls. 78: „1
vinnuáætluninni (Norðurlanda-
ráðs) eru rakin þau svið, þar sem
helst er þörf fyrir aðgerðir til þess
að jafnrétti kynjanna náist, þ.e.
atvinnulífið, fjölskyldulífið, póli-
tísk og þjóðfélagsleg starfsemi, við-
horfsbreytingar almennings, lög-
gjöfin, alþjóðleg samvinna. Einnig
er bent á að jafnréttismálin megi
ekki einangrast, þau verði að vera
eðlilegur þáttur á öllum sviðum
þar sem norræn samvinna á sér
stað og verði Norðurlandaráð að
gefa gott fordæmi“.
Björg Einarsdóttir tók saman.
Hinn 1. desember 1979 var nýtt
Jafnréttisráð skipað. Guðríður
Þorsteinsdóttir lögfræðingur, var
skipuð af Hæstarétti og er hún
formaður ráðsins.
Guðríður er fædd í Reykjavík
15. des. 1946. Hún var stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1966 og cand. juris frá Háskóla ís-
lands 1972. Hún hefur verið fram-
kvstj. Bandalags háskólamanna frá
1972. Maki: Stefán Reynir Krist-
insson viðskiptafræðingur og eiga
þau 1 barn.
Varamaður Guðríðar er Jóhann
H. Níelsson lögfr. Aðrir í ráðinu
eru: Asthildur Ólafsdóttir, skipuð
af félagsmálaráðherra, varamaður
Ragna Bergmann, Gunnar Gunn-
arsson, skipaður af BSRB, vara-
maður Ingibjörg K. Jónsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir, skipuð af
ASI, varamaður Guðmunda Sig-
urðardóttir, Einar Árnason skip-
aður af VSÍ, varamaður Gunnar
Guðmundsson.
Guðríður Þorsteinsdóttir.
63