19. júní - 19.06.1980, Side 70
hljóðfæraleik, söng, erindum og
sýningu listmuna. Um undirbún-
ing sá Guðrún Sigríður Vilhjálms-
dóttir.
Hinn 23. febrúar sl. var haldin á
Hótel Borg ráðstefna um jafna
foreldraábyrgð, en það var um-
fjöllunarefni Alþjóðasambands
kvenréttindafélaga á ári barnsins.
Til ráðstefnunnar var boðið full-
trúum ýmissa félaga og stofnana
auk einstaklinga og sóttu hana
tæplega 100 manns. Flutt voru 8
framsöguerindi um löggjöf, heimili
og fjölskyldu, foreldraábyrgð og
opinbera ábyrgð og um vinnu-
markaðinn. Starfshópar ræddu um
hvern málaflokk og skiluðu niður-
stöðum og loks voru almennar
umræður. Framsöguerindi og
niðurstöður starfshópa hafa verið
gefin út í bók, sem send var þátt-
takendum og fjölmiðlum. Er einn-
ig hægt að fá bókina keypta á
skrifstofu KRFÍ. Um undirbúning
ráðstefnunnar sáu Jónína M.
Guðnadóttir og Esther Guð-
mundsdóttir auk starfsmanns
KRFf Júlíönu Signýjar Gunnars-
dóttur.
Stjórn KRFÍ sendi frá sér um-
sögn um frumvarp til breytinga á
lögum um almannatryggingar,
sem varðar fæðingarorlof. Um-
sögnin er birt á öðrum sta í blaðinu
ásamt umfjöllun um efnið, og
verður hún því ekki rakin hér.
Á síðasta starfsári hóf KRFÍ út-
gáfu fréttabréfs. Komu út 3 bréf á
árinu. Um útgáfuna sáu Berglind
Ásgeirsdóttir og Gestur Ólafsson.
Hefur nú verið ákveðið, að gefa
68
fréttabréfið út mánaðarlega yfir
vetrarmánuðina og er það von
stjórnar, að með þessum hætti
megi betur takast að halda tengsl-
um við félagsmenn og fá fleiri til
starfa.
Formanni félagsins var boðið á
tvo fundi til þess að kynna starf
KRFÍ, til Málfreyjudeildarinnar
Kvists og Samtaka kvenna á
framabraut. Rauðsokkahreyfingin
gekkst fyrir fundi 17. nóvember um
efnið „Konur á þing — hvers
vegna?“ Formaður KRFÍ sótti
fundinn og flutti þar framsögu
ásamt fulltrúa frá Rauðsokkum.
Þá sótti formaður KRFl fund, sem
Ráðherranefnd Norðurlandaráðs
gekkst fyrir i Kaupmannahöfn
hinn 6. nóv. Var þar fjallað um
samstarf opinberra aðila og
áhugafélaga á Norðurlöndum um
jafnréttismál.
Kvenréttindafélagið er aðili að
Sambandi norrænna kvenrétt-
indafélaga og Alþjóðasambandi
kvenréttindafélaga. (IAW).
NKS-þing var haldið í Kaup-
mannahöfn 30. ágúst — 2. sept.
sl. og sóttu það 3 fulltrúar
frá KRFÍ, formaður, Guðrún
Gísladóttir og Esther Guðmunds-
dóttir. Umræðuefni þingsins var
„Kvinder i beslutningsprocessen“
(konur i ákvarðandi stöðum).
Flutti formaður KRFÍ þar yfirlit
yfir stöðuna í þessum málum hér á
landi. Höfðu þingfulltrúar miklar
áhyggjur af því, hve hægt gengi að
skipta ákvarðanatöku jafnt milli
karla og kvenna. Var mikið rætt
um leiðir til að ná því markmiði.
Einn þáttur þess er að konum fjölgi
á þjóðþingum og í sveitarstjórnum.
Var í þvi sambandi rætt um nauð-
syn þess, að konur miðli af reynslu
sinni af stjórnmálajDátttöku, hverj-
ar hafi verið helstu hindranir í vegi
Jjeirra og hvernig megi yfirstíga Jjær.
Mun KRFÍ gangast fyrir ráðstefnu
i haust um þetta efni og bjóða til
hennar öllum konum, sem sæti
eiga í sveitarstjórnum á íslandi.
Fréttatilkynning, sem send var til
fjölmiðla að loknu NKS-jDÍnginu,
er birt annars staðar hér á siðunni.
Næsta J^ing verður haldið í Fær-
eyjum eftir 2—3 ár. Þess má að lok-
um geta, að Grænland er nú sjálf-
stæður aðili að NKS, en landið
fékk heimastjórn fyrir ári síðan eins
og kunnugt er.
Þing Alþjóðasambands kven-
réttindafélaga, IAW, var haldið í
Monrovíu í Líberíu á síðasta ári.
Ekki tókst KRFl að fá styrk til að
senda fulltrúa héðan á Jjingið og
var Kari Skjönsberg, fulltrúa
Norsk kvinnesaksforening veitt
umboð til að greiða atkvæði fyrir
hönd KRFÍ. Björg Einarsdóttir,
sem átti sæti í stjórn Alþjóðasam-
takanna var nú kjörin formaður
Sameinuðu þjóðanefndar samtak-
anna. IAW átti 75 ára afmæli á
siðasta ári, og að því tilefni var
haldinn fundur í Norræna húsinu
með þeim einstaklingum, sem eiga
aðild að samtökunum á Islandi.
Björg Einarsdóttir sagði J)ar frá
stofnun, uppbyggingu og störfum
IAW og kynnti nýútkomna sögu
Jaess, „Woman into Citizen“. I lok
fundarins var samþykkt að senda
heillaskeyti til júngsins í Monro-
víu.
Landsfundur KRFÍ skal skv.
félagslögum haldinn fjórða hvert
ár og verður hann nú haldinn
23.-24. október 1980. Á þessum
landsfundi verður fjallað um lög
KRFÍ, stefnuskrá og starfshætti
félagsins. Er mikil Joörf á að gera
rækilega úttekt á Joessum málum,
m.a. til að starf félagsins verði
hnitmiðað og árangursríkt. Er
einnig nauðsynlegt að leita leiða til
að bæta samstarfið við aðildarfé-