19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 5

19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 5
Feður í fæðingarorlof Eitt af stóru skrefunum Þingheimur samþykkti ein- róma ný lög um fæðingaror- lof rétt fyrir þinglok í vor. Ingólfur V. Gíslason telur róttækar breytingar í lögun- um fela í sér eitt stærsta skrefið sem stigið hafi verið í þá átt að jafna stöðu og möguleika kynjanna á íslandi. Nýju lögin eigi eftir að skila sér með afgerandi jákvæðum hætti til foreldra, barna og þar með samfélagsins í heild. Alþingi hefur samþykkt ný lög sem fela í sér róttækar breytingar á fæðingarorlofi auk þess að kynna til sögunnar nýtt fyrirbæri á Islandi, foreldraorlof. Akaflega margt er þar fært til betri vegar en meginþættir þessara laga munu flestum kunnir: Orlofið er lengt (í áföngum) úr sex mánuðum í níu.Tekin er upp ákveðin binding við einstaklinga þannig að þrír mánuðir eru bundnir föður; þrír móður og þremur geta foreldrar skipt að vild. Bundnu mánuðirnir eru ekki millifæranlegir nema í algerum undantekningartilfellum.Tekinn er upp sveigjanleiki við töku orlofs- ins þannig að þessum níu mán- uðum má dreifa á 18 mánuði. Þátttakendum á vinnumarkaðin- um eru tryggðar greiðslur sem nema 80% af meðallaunum 12 mánaða tímabils sem lýkur tveimur mánuðum áður en orlofstaka byrjar Akveðið gólf er á greiðslum en ekkert þak. Þeir sem eru utan vinnumarkaðar eða vinna minna en 25% af fullri vinnu fá ákveðnar bætun Stofn- aður er sérstakur fæðingarorlofs- sjóður sem fær tekjur sínar með ákveðnum hluta tryggingagjalds atvinnurekenda. Auk fæðingaror- lofsins hafa foreldrar, hvort um sig, rétt til þriggja mánaða for- eldraorlofs sem taka má þar til barnið hefur náð átta ára aldri. Enn eru þessir mánuðir án bóta. Að mínu viti er hér um að ræða eitt stærsta skref sem stigið hefur verið í þá átt að jafna stöðu og möguleika kynjanna á íslandi. Má líkja þessu við afnám kyn- bundinna launataxta og raunar hafa sumir viljað ganga lengra og jafna þessu við kosningarétt kvenna. Ljóst virðist að þingheim- ur hafi einnig verið þeirrar skoð- unar að hér væri um mikið og gott mál að ræða, því enginn vildi þar vera á móti. Mæður annars flokks vinnu- afl Á síðustu áratugum 20. aldar hafa meginvandamálin varðandi jafn- rétti kynjanna verið þrjú: Kyn- bundinn launamunur kynjaskiptur vinnumarkaður og staða karla gagnvart heimili og börnum. Lykil- þáttur lausnar allra þessara atriða felst í fæðingarorlofinu. Við skul- um taka kynbundinn launamun sem dæmi. Þegar við ræðum orsakir kynbundins launamunar og hugsanlegar lausnir þá held ég að það sé skynsamlegt að hlusta á þá sem ráða þessu, þá sem greiða launin, þá sem úthluta sporslunum. Hvernig meta þeir karla og konur; hvaða lóð eru á vogarskálunum? Árið 1995 gaf Skrifstofa jafn- réttismála út ritið Launamyndun og kynbundinn launamunur þar sem í fýrsta sinn hérlendis var farið yfir þá þætti sem ákvörð- uðu laun og kynjabreytan ein- angruð.Tvær tilvitnanir: ,,Kona, sem sér um ráðningar í einkafyrirtæki, staðhæfði að karl- ar og konur ættu alveg jafna möguleika á starfsframa innan fýrirtækisins en sagði jafnframt að auðvitað væri mjög slæmt fyrir konur að detta út af vinnu- markaði í 6-8 mánuði. Því ýtti hún til hliðar umsóknum kvenna með smábörn." [Bls. 59] „Enginn stjórnandi taldi það hafa neikvæð áhrif á möguleika karlmanns til starfsframa að eiga börn yngri en 6 ára. 27% þessara sömu stjómenda taldi hins vegar að það hefði neikvæð áhrif á starfsframa kvenna. Hér breytti engu um svör hvort stjórnend- urnir sjálfir voru karlar eða konur" [Bls. 75] Eða með öðrum orðum og það sem kemur skýrt fram í þessari athugun og öðrum sem ég þekki til hérlendra og erlendra er þetta viðhorf stjórn- enda og atvinnurekenda; konur eru annars flokks vinnuafl. Og ástæðan fyrir því að þær eru annars flokks vinnuafl er að það eru þær sem eru ábyrgar fyrir börnunum. Það eru þær sem eru heima í fæðingarorlofi, það eru þær sem eru heima þegar börn- in eru veik, það eru þær sem fara í foreldraviðtölin, það eru þær sem fara með börnin í læknis- skoðun, píanótímana og ballett- inn. Konur eru annars flokks vinnuafl af því að annað en vinn- an er í fýrsta sæti. Grafið undan feðrum Hvað gerist með vinnutíma karla og kvenna þegar þau eignast sitt fyrsta barn? Samkvæmt vinnu- markaðskönnunum Hagstofunn- ar gerist það að konurnar minnka vinnu sína um sex stundir á viku, karlarnir auka hana um átta stundir á viku. Auðvitað hefur þetta áhrif á atvinnurekendur og stjórnendur og að sjálfsögðu hefur þetta feikileg áhrif á tengsl karla við heimilið og börnin. Ekki er svo sem að undra þótt karlar og konur séu í þeirri stöðu að konan sjái fyrst og fremst um heimili og börn en karlinn sé vinnudýr Alls staðar í samfélaginu finnur maður tilhneigingu til að grafa undan feðrum sem fullgóð- um foreldrum og ýta undir mæðrahyggj'una. Á baksíðu Morgunblaðsins 17. október síð- astliðinn var verið að fjalla um mannekluna á leikskólum í Reykjavík. Þar birtist mynd af tveimur feðrum sem voru að sækja börnin sín. Og myndatext- inn var: „Foreldrar sumra barna á Ægisborg þurftu í gær að sækja börn sín fyrr en venjulega og feð- urnir bera sig fagmannlega að við að klæða börnin í útifötin." Það eru meiri tíðindin að feður geti klætt börnin sín! Auðvitað eru þessir karlar búnir að gera það í tugi eða hundruð skipta. En samt telst það til tíðinda að þeir beri sig almennilega að við klæðnað- inn. Og einu skiptin sem Morgun- blaðið telur sér heimilt að víkja frá þeirri reglu að í atvinnu- auglýsingum sé ekki sérstaklega óskað eftir öðru kyninu, er þegar auglýst er eftir manneskju til að sinna börnum. Þá er í lagi að skýrt komi fram að óskað sé eftir konu. Umtalsverð áhrif virkra feðra Þetta er þeim mun undarlegra þegar haft er í huga að rannsókn- ir sýna aftur og aftur það sem menn auðveldlega sjá í umhverfi sínu. Feður eru engu síðri for- eldrar en mæður Nýlega var gef- inn út í þriðja sinn mikill doðrant- ur um hlutverk föðurins í þroska barnsins (Michael Lamb (ritstj.): The Role of the Father in Child Development). Þegar þar eru dregnar saman í inngangi niður- stöður samanburðar á börnum þar sem feður eru í hefðbundnu aðstoðarmannshlutverki og síðan þar sem feður eru mjög virkir þátttakendur í umönnun og uppeldi er niðurstaðan þessi: „Börn virkra feðra sýna aukna vitsmunalega hæfileika, aukna samkennd með öðrum, eru síður ► 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.