19. júní - 19.06.2000, Blaðsíða 15
5 |
Gígja Þórðardóttir og Unnur Guðrún Pálsdóttir útskrifast sem sjúkraþjálfarar frá Háskóla íslands síðar á þessu ári. Lokaverkefni
þeirra byggist á rannsókn á því hvort samband er á milli bætts líkamlegs ástands og upplifaðra heilsutengdra lífsgæða. í þessu
tilviki standa lífsgæði fyrir almenna líðan, lífsfyllingu og andlega heilsu. Niðurstaða rannsóknarinnar var í stuttu máli sú að
ræktun líkamans skilar sér í bættri andlegri heilsu. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti þessar kraftmiklu konur og forvitnaðist um
rannsóknarverkefnið.
I hverju fólst framkvæmd rann-
sóknarinnar?
Við héldum þriggja mánaða
fjölbreytt líkamsræktamámskeið
fyrir 34 konur á aldrinum 17-57
ára og lögðum mikla áherslu á
fræðslu. Konurnar svöruðu
spurningalistanum ,,Heilsutengd
lífsgæði" í upphafi námskeiðs og
eftir að því lauk. Auk þess fóru
þær í þrekpróf, fitumælingu og
voru vigtaðar, bæði fyrir og eftir
Hvernig kom það til að þið
ákváðuð að gera slíka rannsókn
að lokaverkefni ykkar?
Okkur fannst að hugtakið
heilsurækt ætti að skoða í vfðara
samhengi en bara sem aðferð til
að losna við kíló eða líta vel út.
Heilsa snýst líka um almenna
andlega vellíðan. Og þó við heyr-
um fólk auðvitað oft tala um að
því líði svo vel eftir að það byrjar
að sinna likamanum, þá hefur
aldrei verið beitt mælistiku á það
hérlendis. I skólanum heyrðum
við af stöðluðum spurningalista
sem mældi persónubundin lífs-
gæði og notaður hefur verið á
sjúklinga í meðferð og þá datt
okkur í hug hvort ekki væri hægt
að nota þennan sama lista á heil-
brigt fólk sem tæki sig á í að bæta
líkamlegt ástand sitt. Það voru
hæg heimatökin fyrir okkur að
framkvæma slíka rannsókn, því ►
15