19. júní


19. júní - 19.06.2000, Page 25

19. júní - 19.06.2000, Page 25
svið í örri þróun. Kvenna- og kynjafræðilegt sjónarhorn hefur verið áberandi innan bók- menntafræði, sagnfræði, heim- speki og félagsvísindagreina und- anfarna áratugi.Við flesta háskóla í Bandaríkjunum og í Vestur- Evrópu hafa fyrir löngu síðan verið stofnaðar kvenna- og kynjafræðilegar deildir; fag sem hét „womens studies" en heitir nú „gender studies". Kynjafræðin hér á landi á sér enga sérstaka fyrirmynd en umsjónarmenn námsins hafa þó kynnt sér hvernig nám af þessu tagi er uppbyggt erlendis og þá sérstaklega í Bandari1<junum og á Norðurlöndunum. Þær konur sem hafa helst mótað þetta nám eru Dagný Kristjánsdóttir og Helga Kress við heimspekideild Háskóla Islands og Rannveig Traustadóttir og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir við félagsvís- indadeild. Soffía Auður telur nám í kynjafræðum vera í grundvallar- atriðum svipað um allan heim. Það sem skiptir mestu máli er hið kynjafræðilega sjónarhorn og hin þverfaglega nálgun. Mark- miðið er að kenna nemendum að líta á samfélagið og tilveruna frá gagnrýnu sjónarhorni og að vera vakandi fyrir því kynja- fræðilega sem eðlilega er alls staðar að verki í þjóðfélaginu. Jafnréttishugsjónin í náminu er sterk, feminísk sjónarhorn hafa verið ráðandi en sjónarhorn karlafræða kemur æ meira inn í þessi vísindi með breyttum áherslum og meiri umræðu um stöðu karla. Framtíðin björt Framtíð kynjafræðinnar er án efa björt. Nýlega hefur verið auglýst eftir lektor í kynjafræðum en námið hefur hingað til verið grundvallað á kennslu stunda- kennara. Það er því mjög mikil- vægt og stórt skref fyrir kynja- fræðina að fá loksins lektors- stöðu að loknum fjögurra ára reynslutíma fagsins. Lektorsstað- an í kynjafræðum verður þá önnur kynjafræðilega staðan við Háskóla Islands. Framtíðarsýn Soffíu Auðar er að fagið muni vaxa og fastráðnir lektorar við deildina verði fleiri. Fyrsti lektorinn mun kenna Inn- gang að kynjafræðum, en þar er markmiðið að gefa yfirlit yfir stöðu kvenna í mismunandi sam- félögum og menningarsamfélög- um. Ahersla er lögð á þann fjöl- breytileika sem er að finna í lífi kvenna og þverfaglegu feminísku sjónarhorni er beitt. I þessu nám- skeiði er einnig fjallað um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. A herðum komandi lektors mun hvíla mikil þróunar- vinna og uppbygging í faginu og vonandi verður hægt að bjóða upp á mastersstig innan fárra ára. Fram til þessa hefur umsjón kynjafræðinnar færst á milli kennara, ofan á fullt starf þeirra. Rannveig Traustadóttir dósent byrjaði, síðan tók Dagný Krist- jánsdóttir dósent við og síðast- liðinn vetur hafði Soffía Auður Birgisdóttir, fastráðinn stunda- kennari, umsjón með náminu. Uppbyggingu kynjafræðinámsins og umsjón með kennslunni hefur því verið sinnt í hjáverkum og þess vegna er mjög mikilvægt að fá lektorsstöðu í greininni. „Það er mikill ávinningur að fá lektors- stöðu við kynjafræðina því ætíð hefur verið borið við fjárskorti þegar sú krafa var orðuð. I vetur hefur Rannveig Traustadóttir unnið ötullega að því að fá lekt- orsstöðuna og fyrir hennar frumkvæði hefur Páll Skúlason gefið samþykki sitt og kostað stöðuna. Það er líka fyrir hans til- stuðlan að kvennaguðfræðistað- an fékkst í gegn fyrr í vetur og við erum að sjálfsögðu mjög ánægðar með Pál," segir Soffía Auður Þegar kennsla hefst í Háskóla Islands í haust munu starfa þar tveir lektorar í stöðum sem skil- greindar eru sem kynjafræðileg- ar; innan hinnar þverfaglegu kynjafræði og innan guðfræði- deildar. Væntanlega mun kynja- fræðilegum stöðum fjölga innan Háskólans á næstu árum. ■ I Bríet á Netinu Loksins er Bríet - félag ungra femínista komið með heimasíðu. Slóðin er http://www.simnet.is/tba/. Síðan er enn í smíðum og þvi' ekki hægt skyggnast inn í hvern krók og kima ennþá. I framtíðinni verður hægt að skoða síðuna á þrem tungumálum, dönsku, ensku og að sjálf- sögðu íslensku. Nú er aðeins íslenska útgáfan starfhæf.Á heimasíðunni er kynning á félaginu, því sem það hefur áorkað og stutt kynning á hinni einu sönnu Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Þar fyrir utan er hægt að finna stefnuskrá Bríetar og tvær myndir af nokkrum félagsmönnum. Á síðunni er m.a. hægt að finna greinasafn Hildar Fjólu Antonsdóttur um klámiðnaðinn á íslandi. Greinarnar hrundu af stað mikilli umræðu um nektar- staði í Reykjavík og á Akur- eyri í vetur. Enn er ekki hægt að hafa samband við félagið í gegnum heimasíð- una en einsog áður er hægt að senda tölvupóst á brietfem@hotmail.com eða hafa samband símleiðis til að ná í stelpurnar. ■ 25

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.