19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 28

19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 28
Ris og hnignun kvenna- framboða í Reykjavík Kvennaframboðin í Reykjavík hafa lengi verið hugðarefni Dr. Auðar Styrkársdóttur stjórn- málafræðings, en í samtali við Örnu Schram greinir hún frá niðurstöðu doktorsritgerðar sinnar um framgang og áhrif kvennaframboða í Reykjavík í byrjun 20. aldarinnar. Doktorsritgerð Dr. Auðar Styrkársdóttur stjórnmálafræð- ings, sem hún varði við Háskólann í Umeá í Svíþjóð í byrjun síðasta árs, ber yfirskriftina Frá feminisma til stéttarstjórnmála og undirtitill- inn er Ris og hnignun kvenna- hreyfingarinnar í Reykjavík á árun- um 1908-1922. Eins og mörgum er eflaust kunnugt um er þetta ekki f fyrsta sinn sem Auður gerir starf kvennahreyfingarinnar á Islandi að viðfangsefni í rannsókn- um sínum því B.A.- ritgerð Auðar frá Háskóla Islands vorið 1977, sem stuttu síðar var gefin út af félagsvísindadeild Háskóla Islands, er um kvennaframboðin á Islandi á árunum 1908-1922. Auður segir sjálf svo frá í inngangi dokt- orsritgerðar sinnar að þetta við- fangsefni, kvennahreyfingin á Islandi á fýrstu áratugum tuttug- ustu aldarinnar hafi fylgt sér allar götur sfðan hún sem ungur rann- sakandi skrifaði fýrrgreinda loka- ritgerð sína við Hl. „Hugmyndin að verkefninu tók á sig mynd vet- urinn 1976-1977 í Reykjavík, Islandi, og lýkur því nú í Umeá í Svíþjóð," segir hún í inngangi doktorsritgerðarinnan sem gefin var út af stjórnmálafræðideild Umeá Háskóla árið 1998. Varla þarf þó að taka fram að ritgerð- irnar tvær eru afar ólíkar að upp- byggingu og vexti enda langur vegur milli B.A.-ritgerðar á átt- unda áratug 20. aldar til doktors- ritgerðar í lok þess tíunda. Konur buðu fyrst fram kvenna- lista í bæjarstjórnarkosningum í Reykjavík árið 1908 og fengu 27,6% greiddra atkvæða en þá voru 26 ár liðin frá því konur um allt land hlutu kosningarétt til sveitarstjórna og sex ár frá því þær hlutu kjörgengi á sveitar- stjórnarstiginu. Eftir þann tíma buðu konur fram lista í bæjar- stjórnarkosningum í Reykjavik fram til ársins 1918 og á þeim tíma komu einnig fram sérfram- boð frá konum á Akureyri og Seyðisfirði. Þá buðu konur fram sérlista í landskjöri til Alþingis árið 1922 og hlutu 22,4% greiddra atkvæða en kosningarétt og kjör- gengi til Alþingis höfðu þær hlot- ið, til jafns við karlmenn, hinn 19. júnf árið 1915. Eftir það buðu konur ekki fram sérlista til Alþing- is fyrr en árið 1983 er Samtök um kvennalista voru komin til sögunnar Auður fjallar m.a. um upphaf og endi þessarar kvennahreyfingar á Islandi á árunum 1908-1922 og leggur út frá þremur spurningum sem hún varpar fram í byrjun rit- gerðarinnar I fyrsta lagí spyr hún hvers vegna það hafi tekið svo miklu lengri tíma fyrir konur en karla að öðlast kosningarétt til Alþingis. I öðru lagi spyr hún hvaða áhrif konur hafi haft í stjórnmálum á umræddum tíma og í þriðja lagi hvers vegna svo langur tími hafi liðið frá því konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis þar til hlutur kvenna hafi orðið verulegur i' stjórnmálum á landsvísu. Auður segist f samtali við blaðamann hafa geta svarað öllum þessum spurningum með því að skoða stjórnmálaþátttöku kvenna á umræddu tímabíli í Reykjavík, en á þeim tíma voru konur afar virkar í stjórnmálum. Einnig hafði hún hliðsjón af rann- sóknum í þessum efnum í öðrum löndum, einkum í Evrópu og Bandan1<junum. Konur utan stjórnmálaflokk- anna Þegar litið er á fyrstu spurningu Auðar í doktorsverkefni hennar ber að hafa í huga að allir karl- menn á Islandi eldri en 25 ára, að undanskildum vinnumönnum, voru komnir með kosningarétt til Alþingis og sveitastjórna árið 1903. Að sögn Auðar þurftu karl- mennirnir vissulega að berjast fyrir þessum réttindum sínum en það tók konur mun lengri tíma að ná þessum sömu réttindum og þar að auki miklu „harðari bar- áttu". Ástæðuna rekur Auður til þess að á þessum tíma hafi sam- félagið verið að breytast, m.a. vegna flutninga fólks úr dreifbýli í þéttbýli, og til varð sérstakt svið i' þjóðfélaginu sem kallað er stjórn- mál með þjóðþingum og stjórn- málaflokkum innanborðs. „Nítján- da aldar fólk var mjög meðvitað um að það var að skapa nýtt samfélag og að það dygði ekki að láta það byltast stjórnlaust fram heldur yrði að setja einhvers konar bönd á það," útskýrir Auður og bendir á að þeir sem hafi verið við völd hafi séð þetta og í þeim tilgangi tekið þátt í stofnun stjórnmálaflokka, flokka sem fyrst og fremst voru stofnað- ir af karlmönnum fyrir karlmenn. Á sama tíma, bætir hún við, spruttu upp alls kyns félög í kring- um drengi og karla, til að mynda íþróttafélög, skátarnir og kristileg félög ungra drengja. „I gegnum stjórnmálaflokkana tengdust karl- menn af öllum sviðum samfélag- ins, bæði háum og lágum og í gegnum þá og önnur karlafélög gátu þeir talað saman um sameig- inleg málefni," segir hún og tekur fram að konum hafi verið haldið fýrir utan stjórnmálaflokkana þar til þær hafi hlotið kosningarétt. Og þar sem aðgangur að stjórnmálaflokkum og stofnunum á borð við þjóðþing var konum ekki heimill gekk þeim verr að ná kosningarétti en karlmönnum. „Þess vegna verður barátta kvenna miklu harðari og erfiðari en karlmanna," útskýrir hún. „Stjórnmálin verða heimur karl- mannanna og konur eiga þangað lítið erindi að þeirra mati." Auður segir að uppkoma kvennahreyfinganna megi að ein- hverju leyti rekja til þess að konur hafi verið útilokaðarfrá þátttöku í stjórnmálum. „Þær voru svo sannarlega ekki kúgaðar þessar konur á nítjándu öld en ef maður athugar lagalega stöðu þeirra mætti halda að þær ættu sér engrar viðreisnar von. Samkvæmt laganna bókstaf höfðu þær nánast engin réttindi heldur áttu allt undir bónda sínum í þeim efnum." Auður rtrekar að nrtj- ándu aldar konur hafi síður en svo verið kúgaðar heldur farið sinna ferða hvað sem á dundi. „Þær tóku hugmyndir heimspekingsins Rousseau, um að konur væru sið- vekjandi afl í samfélaginu og bæru þess vegna að styðja eiginmenn sína, sneru þeim við og sögðu: úr því við erum afl í þjóðfélaginu eigum við að fá kosningarétt. Þær berjast því fyrir réttindum sínum á grundvelli ákveðinna hugmynda sem eru rikjandi í samfélaginu; snúa við þeim vopnum sem beitt er gegn þeim og nota í sína eigin baráttu. Það var auðvitað mjög snjallt." Bæöi bein og óbein áhrif I umfjöllun sinni um aðra spurningu verkefnis síns segir Auður að konur hafi í byrjun 20. aldarinnar haft bæði bein og óbein áhrif í stjórnmálum, annars vegar í gegnum fulltrúa sína i' bæj- 28
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.