19. júní - 19.06.2000, Page 33
Netjómfrúr
rætt við hina og þessa út um
allan heim sem eru á Netinu í
sama tilgangi og Bob „stinni"
*hehe* Eg hef verið að re/na að
fá botn í það hvernig það getur
æst ykkur karlpeninginn upp að
einhver kona úti í heimi segist
vera með Pameluvöxt og íklædd
dýrindis rauðu leðri þegar við-
komandi gæti verið hvernig sem
er Þeir gætu eins verið að tala
við sveitta þriggja barna móður
með applsínuhúð og í hvítum
bómullarnærum af stærstu gerð.
Skiptir víst ekki máli... svo lengi
sem þeir halda í fantasíuna :-)
Strákunum fannst reyndar ekk-
ert mjög gaman að ég væri að
minna þá á þetta og urðu frekar
argir ef ég minntist á að viðmæl-
endurnir gætu allt eins verið
karlmenn :-P (ull).
Það er nefnilega mjög algengt
að fólk skipti um kyn í Netheimi.
Vissirðu það? Eg er sko að lesa
um þetta í áðurnefndum kúrsi.
Sálfræðingar um allan heim hafa
um nokkurt skeið rannsakað
hversu algengt er að fólk skipti
um kyn í Netheimi og hvers
vegna.Talið er að algengara sé að
karlmenn þykist vera konur en
öfugt. En náttúrulega eru líka
miklu fleiri karlmenn á Netinu
enn sem komið er John Suler
doktor í sálfræði við Rider
háskóla í Bandaríkjunum, segir að
ástæður fyrir því að fólk skipti
um kyn í Netheimi séu fjölmarg-
ar og ólíkar Algengt er að hér sé
hreint og beint um forvitni og
ævintýragirni að ræða, marga
langar til að prófa hvort það sé
eitthvað öðruvísi að vera af hinu
kyninu eða eru spenntir að vita
hvort þeir komast upp með það.
Stelpur þykjast vera strákar til að
losna við kynferðislega áreitni á
spjallrásum en strákar þykjast oft
vera stelpur til að fá meiri athygli
eða hjálp með einhver tölvu-
verkefni. Strákar hjálpa nefnilega
stelpum miklu frekar Svo eru
það þeir sem eru að kynnast
,,konunni" í sér :-) Auðvitað eru
miklu fleiri og flóknari ástæður
sem hann talar um en þú verður
bara að kíkja í bókina ef þú hefur
áhuga, hún er á Netinu:
http://www.rider.edu/users/suler
/psycyber/psyq/ber.html
Ég skal segja þér það að síðan
ég kynntist þessum nýja heimi
hef ég nokkrum sinnum skipt um
kyn á spjallrásum sjálf. Það hefur
verið til að komast í alvarlegar
samræður um eitt og annað sem
tengist Netinu eða kvikmynda-
fræði. Ef ég heiti Siggi þá losna ég
við allar leiðindaathugasemdirn-
ar sem ég fæ sem Sigga. Otrúlegt
en satt! Hins vegar ef mig vantar
hjálp þegar ég er að vinna með
myndir eða grafík þá er ég sko
alltaf Sigga og fæ hjálp um leið :)
Sumir segja að í Netheimi séu
allir jafnir; engin stéttaskipting, en
það er sko ekki rétt. Hefurðu
tekið eftir því? í Netheimi er ekki
stéttaskipting á sama hátt og við
eigum að venjast, en það er ekki
þar með sagt að ekki fyrirfmnist
neinn aðall eða lágstétt. Ensk-
umælandi, háskólagenginn forrit-
ari með mikla reynslu af bæði
innviðum tölvu og forritum og
með húmorinn í lagi væri dæmi-
gerður aðalsmaður i' Netheimi.
Ég var að spjalla um þetta við
vinkonu mína um daginn, hún
heitir Christi og býr í Bretlandi.
Christi er kerfisstjóri hjá lögregl-
unni í Nottingham, búin að vera
lengi á Netinu og er eldklár í
sambandi við allt sem við kemur
tölvum... eiginlega dæmigerð
aðalskona í Netheimum. Christi
segir að útlitið skemmi oft fyrir
henni í vinnunni. Hún er há,
grönn og falleg Ijóska sem neitar
að hætta að ganga í stuttum pils-
um til að vera tekin alvarlega.
Christi segir að því miður komi
það of oft fyrir að ekki sé hlust-
að á hvað hún hefur að segja
vegna þess hvernig hún lítur út.
Um daginn var ekki hlustað á til-
lögu hennar að úrbótum í vinn-
unni en svo þegar hún fékk karl-
kyns vinnufélaga til að leggja
fram sömu tillögu nokkru síðar
fékk tillagan góðan hljómgrunn.
Christi segist eiga auðveldara
með að koma sérfræðiþekkingu
sinni og skoðunum á framfæri í
Netheimi þar sem þeir sem hún
hefur samskipti við sjá hana ekki.
Þá er hún tekin alvarlega. Finnst
þér þetta ekki fáránlegt... en lífið
er líka oft skrýtið... það er ekkert
nýtt.
Þar sem ég er að skrifa um
myndir pólska leikstjórans
Kieslowskis í kvikmyndafræði
heimsæki ég oft vefsíðu þar sem
fólk skiptist á skoðunum um
myndir meistarans. Við erum öll
einlægir aðdáendur og mörg
okkar að vinna að rannsóknum á
verkum Kieslowskis. Þarna er
fólk að velta fýrir sér smáatrið-
um eins og notkun glers í mynd-
unum eða litanotkun, við gleym-
um okkur í smáatriðum sem við
elskum að velta okkur upp úr Ef
ekki væri fyrir Netið er ég ansi
hrædd um að ég myndi einangr-
ast í rannsóknum mi'num á þess-
um merkilega kvikmyndaleik-
stjóra. En í þessu tilfelli gerir
Netið það að verkum að Iftill
áhugahópur skipaður fólki af ótal
þjóðernum, báðum kynjum og á
öllum aldri nær saman. Ef þig
langar að kikja á spjallþræðina þá
er slóðin:
http://www.petey.com/kklist/pjk
chalhtm
Eftir því sem ég kemst lengra
inn í Netheiminn sé ég betur og
betur að rétt eins og „kjötheim-
urinn" hefur Netheimurinn að
geyma allt litrófið. Hann er ekk-
ert öðruvísi en „kjötheimurinn"
að því leyti. Mér leiðist þegar fólk
lætur eins og á Netinu sé ekkert
nema klám og ósómi og mér
leiðist jafn mikið þegar fólk telur
að Netið sé heilagt fyrirbæri sem
allir græði botnlaust á. Netheim-
urinn hefur sínar góðu og slæmu
hliðan og það tekur mann sjálf-
sagt smáti'ma að læra á samskipti
í Netheimum :o)
Jæja gamli minn... segðu mér
nú fréttir af sjálfum þér fljótlega.
Ertu eitthvað að þvælast á Net-
inu? *púkalegt glott*
Kær kveðja,
Sigga ■
33