19. júní - 19.06.2000, Side 35
Bróderandi karlmaður á
lestarferð í Marokkó
Bjarni Harðarson býr á Selfossi
og er ritstjóri Sunnlenska frétta-
blaðsins. Hann segir það mjög
gott og róandi fyrir „ofvirkar
strákatýpur" eins og hann að setj-
ast niður og sauma út. Sem barn
austur í Laugarási í Biskupstung-
um hafði hann gaman af handa-
vinnu en á henni varð þó hlé þar
til á menntaskólaárunum. Að
þeim loknum varð aftur hlé eða
þar til yngri synir hans fæddust. Á
ferðalagi í fjarlægu landi fyrir
skemmstu tók hann svo enn á ný
upp þráðinn og stytti sér stundir
á löngum lestarferðalögum með
því að bródera.
Hann segist hafa byrjað
snemma að dunda sér við að
gera hluti íhöndunum og sjálfsagt
hafi það haft sín áhrif að móðir
hans var og er mikil handavinnu-
kona. „Mér fannst allltaf frekar
skemmtilegt að sauma en hins
vegar man ég að ég lærði ein-
hvern tímann að prjóna og það
þótti mér hræðilega leiðinlegt,"
segir Bjarni.
Stæröfræöi á hvítum kross-
saumsfleti
„Svo liðu mörg ár og ég kom
ekkert nálægt svona löguðu fyrr
en að áliðnum menntaskóla,"
segir Bjarni, en hann var í heima-
vist í Menntaskólanum að Laug-
arvatni. „Á þessum aldri var
maður alltaf að fá fnkaðar og frjó-
ar hugmyndir Einhvern ti'ma datt
mér í hug að sauma út gríðar-
stórt stykki, en var í rauninni ekki
með það alveg mótað frá upphafi
hvað það ætti að vera og ákvað
þess vegna að byrja bara á því að
sauma út stóran hvítan kross-
saumsflöt og setja svo eitthvað í
hann eftir á," segir Bjarni, sem
saumaði nokkuð lengi áður en
hann datt niður á myndefni sem
honum þótti hæfa vel. Það var
teikning sem hann tók upp úr
Heimilisiðnaðarskólinn
Spennandi handverksnámskeið.
Lærið gömul vinnubrögð hjá sérhæfðum
kennurum.
Kvöldnámskeið. Allar upplýsingar og skráning
á námskeið mánudaga og fimmtudaga
kl.10-18 og (tölvupústi,
heimilisidnadur@islandia.is.
Nemendafjöldi takmarkaður á hvert
námskeið.
þjóðbúningar - baldýring - knipl
útsaumur - almennur vefnaður -
spjaldvefnaður - bútasaumur útskurður -
tóvinna - jurtalitun sauðskinnskógerð og
margt fleira.
Verslun, þjónusta og upplýsingar.
Við sérhæfum okkur i að veita upplýsingar um þjóðbúningagerð,
vefnað og vefnaðaráhöld og íslensk útsaumsmynstur.
Ullarefni, skyrtuefni, svuntuefni
Kniplingar, orkeringar, slifsi, húfur og skúfar
Javi, strammi og ullargarn
Hörband, bómullarband, skyttur og skeiðar
Og margt fleira
Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-18.
Heimilisiðnaðarskólinn
Laufásvegi 2 101 Reykjavík • Sími 551 7800 Fax 551 5532
IMetfang: heimilisidnadur@islandia.is
Bjarni Harðarson og umfangsmesta útsaumsverk hans til þessa en
það hefur stærðfræðilega tilvísun.
stærðfræðibók. „Þetta var mynd
sem var dregin upp af einhverju
falli til þess að útskýra hvað fall
væri. Og mér fannst hún bara
passa vel þarna," segir hann og
bætir við að hann hafi einmitt
verið í eðlisfræðideild og haft
brennandi áhuga á stærðfræði.
„Saumaskapinn var ég aðallega
að dunda við á sunnudögum, en
þá var maður eiginlega ekki til
neins annars eftir skemmtanalíf
helgarinnar Það voru margir svo-
leiðis sunnudagar á þessum
tíma."
Aftur liðu mörg herrans ár þar
til Bjarni snerti á handavinnu.
Þegar næstyngsta barnið kom í
heiminn árið 1988 var það sam-
eiginleg hugdetta hjá honum og
konu hans, Elínu Gunnlaugsdótt-
un að búa til klukkustreng þar
sem á er saumað nafn barnsins,
hvenær það er fætt, hvað það er
langt og þungt o.s.frv. „Við saum-
uðum þetta í sameiningu, hjóna-
kornin, en ég held að ég sé nú
samt ekkert að ýkja þegar ég segi
að ég hafi átt góðan helming i'
verkinu," segir hann drjúgur með ►
I (ffiíatofa/ietáa
Pantið útsauminn hjá okkur
Póstveslun fyrir hannyrðavini
Sími 533 5444 • Fax: 533 5445
Netfang: handavinna@margaretha.is
Veffang: margaretha.is
Hringið í síma 533 5444 og pantið ókeypis vörulista |