19. júní - 19.06.2000, Síða 42
(--------\
kPfh/
KROSSINN
Skínandi fögur
tœkifœrisgjöf
Tákn heilagrar
þrenningar
A'íÍ fáanlegur sem bindisnœla.
Til styrktar blindum
Fœst um allt land.
Dreifingaraðili:
BLINDRAFÉLAGIÐ
SAMTÓK BUNDRA OG SJÓNSKERTRA Á ÍSLANDI
llamrahlít) 1 7, Reykjavtk
S. 525-0000
hræra upp í samfélagi sem flestir
telja að sé fullkomið. Sumar
gamlar vinkonur mínar virðast
halda að ég sé hættuleg og eru
hættar að hafa samband. Ef
stelpurnar hitta mig af tilviljun er
ekki óalgengt að ráðist sé á mig
með skömmum fyrir að vera að
standa í óþarfa vitleysu. Þetta er
því miður mjög algengt hugarfar
meðal yngri kynslóðarinnar.
Hulda Dóra: Hugarfarið er
alls ekki komið.
Bryndís: Já, grundvöllurinn
felst í þvi' hvort þú áttir þig á
raunveruleikanum og sjáir tæki-
færin eða haldir bara að allt sé í
lagi. Mér finnst ekkert allt vera í
lagi og langt í frá.
Brynhildur: Ég var að hlusta á
útvarpsþátt á einni af nýju
útvarpsstöðvunum fyrir ungt fólk
í bílnum um daginn.Tveir algjör-
lega fáránlegir ungir menn voru
að tala um réttindi kvenna.
Annar átti að færa fram rök fyrir
því að konur ættu rétt á fullum
réttindum til jafns við karla og
hinn hélt því fram að best væri
að konur færu aftur inn á heimil-
in. Hann sagði að konur ætti ekki
skilið að fá sömu laun og karlar
því að karlar hefðu verið að
vinna úti í 2000 ár en konur ekki
(hinar geta ekki varist hlátrí).
já, eiginlega var dálftið fyndið
að hlusta á framhaldið, því hinn
vissi eiginlega ekki hverju hann
ætti að svara þessum óneitan-
lega sönnu rökum! Tvímenning-
arnir fóru að taka við símtölum
frá hlustendum og fyrstu við-
mælendurnir voru allt ungir
strákar Strákarnir ósköpuðust
allir yfir því hversu lág laun væri á
vinnumarkaðnum. Eina leiðin til
að hækka launin væri að konur
færu aftur inn á heimilin.
Af hverju hringdir þú ekki inn?
Brynhildur: Batteríið var því
miður búið í símanum mínum. A
eftir hringdu inn tvær stelpur.
Fyrri stelpan var nokkurn veginn
sammála strákunum og tók fram
að af því konur hefðu ekki verið
svo lengi úti á vinnumarkaðnum
væri ekki hægt að búast við svo
miklu strax. Seinni stelpan tók
fram að hún vildi að karlar og
konur fengju sömu laun fyrir
sömu vinnu. Aftur á móti sagðist
hún ætla að vera heima eftir að
hún eignaðist börn því að hún
vissi að maðurinn hennar myndi
fá hærri laun. Þessi þverskurður
er því miður dæmigerður fyrir
hugsunarleysi krakka í dag.
Hulda Dóra: FBA tók að sér
að vinna verkefni í tengslum við
jafnrétti í kjölfar ráðstefnunnar
um konur og lýðræði í haust.
Spurningin var bara hvar ætti að
bera niður og umræður spunn-
ust um af hverju jafn fáar konur
ynnu á okkar hluta af fjármála-
markaðinum og raun bæri vitni.
Ein ástæðan er að konur leita í
minni mæli en karlar eftir störf-
um í þessum geira. Það er slæmt,
því konur eiga ekki síður erindi
inn í hann, Það er ekki ólíklegt að
hefðbundin viðhorf um hlutverk
karla og kvenna heimavið og á
vinnumarkaðnum hafi þarna
áhrif. Þessi viðhorf mótast
snemma - á heimilum og í skól-
um. Þarna kviknaði hugmynd um
að búa til námsefni í jafnréttis-
málum fýrir grunnskóla, en mjög
lítið er til af svoleiðis efni. Náms-
gagnastofnun tók að sér að sjá
um ritstjórn og útgáfu efnisins og
FBA, Hans Petersen og Sjóvá-AI-
mennar styrkja það. Námsefnið
er komið mjög vel á veg og því
er ætlað að vera umræðugrund-
völlur svo að krakkar fari að
velta jafnréttismálum eitthvað
fyrir sér.
Sigríður: Já, nýtt viðhorf um
að nýta krafta kvenna er auðvit-
að góðra gjalda vert og á eflaust
eftir að skila töluverðu inn í
framtíðina.Við megum samt ekki
gleyma því að viðhorfið er alltaf
talsvert á eftin Ekki aðeins hjá
unga fólkinu, heldur almennt.
Brynhildur: Þekkingarfyrirtæki
eru orðin eins konar mýþólógía í
þjóðfélaginu en starfsmenn
þeirra eru aðeins lítill hluti af
vinnuafli Islendinga. Fæstir Islend-
ingar hafa menntun til að vinna
við þekkingarfyrirtækin. Gleym-
um því ekki. Nú er verið að tala
um að í þekkingarfyrirtækjunum
búi tækifæri kvenna og að aðeins
heilinn skipti máli í þekkingar-
samfélaginu. Samt er bara talað
við karla í FBA í fréttunum. Nú
hef ég starfað á þremur láglauna
kvennavinnustöðum á minni
Jóhanna.
stuttu starfsævi. Á láglauna karla-
vinnustöðum vinna karlar fyrir
aðeins hærri laun. Það er þetta
sem ég tel brýnast að breyta.Við
þurfum að horfast í augu við
raunveruleikann eins og hann er
á vinnumarkaðnum í dag, ekki
dreyma um glæsta framtíð í
þekkingarfyrirtækjum.
Sigríður: Afsakið - hvað er átt
við með þekkingarfyrirtæki?
Hulda Dóra: Þekkingarfyrir-
tæki geta verið hugbúnaðarfyrir-
tæki, Islensk erfðagreining...
Bryndís: Fyrirtæki sem byggja
á mannauði.
Jóhanna: Hvaða fyrirtæki
byggja ekki á mannauði?
Hulda Dóra: Já, ef maður
hugsar út í það er t.d. ISAL líka
þekkingarfyrirtæki, því það þarf
mikla þekkingu og reynslu til að
framleiða ál svo vel sé. Á endan-
um býst ég við að hægt sé að
segja að flest fyrirtæki séu þekk-
ingarfyrirtæki, t.d. sjúkrahús.
Hvað geta stjórnvöld gert til að
styðja við jafnréttisbaráttuna,
Bryndis ?
Bryndís: Það sem snýr að
stjórnvöldum í dag er fyrst og
fremst að skapa fólki tækifæri til
að sinna betur ábyrgð sinni á
fjölskyldu og samræma þá
ábyrgð atvinnuþátttöku. Núna
hafa verið lagðar til breytingar á
reglum um fæðingarorlof, bæði
til samræmingar á milli hópa og
til lengingar á fæðingarorlofstím-
anum. Hvort tveggja var orðið
mjög brýnt að gera og enn er^
42