19. júní - 19.06.2000, Side 51
Bergmál lífsins
Sólarlagið kallar á nóttina.
En dögun fylgir öllum nóttum.
Ljósið kastar skugga á tilveruna.
Tilveran er Ijós og myrkur.
Ellin er nýr dagur.
Dagurinn þjónar lifinu.
Dauðinn er bergmál lífsins.
Sr. Bragi Skúlason
Er munur á sorgarviðbrögðum
karla og kvenna? Eða er þetta
kannski röng spurning? Ættum
við kannski frekar að spyrja:Er
munur á þeim farvegi, sem karl-
ar annars vegar og konur hins
vegar velja sér, eða fara í, þegar
sorgin kveður dyra?
Samanburður á sorgarferli
kynjanna er ekki alltaf hjálplegur,
því hætt er við að hann leiði til
ásakana („Þótti þér ekki eins
vænt um hana og mér?“), mis-
skilnings („Hvers konar maður
segir svona lagað?") og jafnvel
höfnunarupplifunar (,,Eg kemst
ekki nálægt þér lengur"). Sorgin
er að sjálfsögðu persónubundin
og ekki er raunhæft að segja, að
konur syrgi á einn veg, en karl-
menn á annan veg. Langtum
fleira er sameiginlegt. Tómið,
söknuðurinn, doðinn, reiðin,
sektarkenndin, vanmáttar-
kenndin, „hvað ef?"- hugsanir,
grátköst, hjartsláttarköst, höfuð-
kvalir, ofheyrnir, einmanaleiki,
endurskoðun á markmiðum í
lífinu. Sorgarferlið er fjölbreytt,
en fólk upplifir margt af hinu
sama.
I starfi sorgarsamtaka kemur í
Ijós, að almennt talað nýta
ekklar sér síður möguleika í
formi fræðslu og stuðningshóp-
astarfs en ekkjur. Segir þetta að
konur séu opnari í úrvinnslu
sinni á sorginni? Ekki endilega,
en þær eru a.m.k. duglegri við
að nýta sér fræðslu- og stuðn-
ingstilboð og þau virðast höfða
til þeirra umfram karla. Hafa
karlar ekki þörf fyrir fræðslu um
sorgina? Jú, en kannski þarf að
nálgast þeirra sorg, eða sorgar-
úrvinnslu út frá öðrum forsend-
um. Er ekki æskilegt, að kynin
eigi aðgang að sameiginlegri
umræðu, þar sem allir tala
saman? Jú, en það hentar bara
ekki öllum.
Staðreyndin er sú, að lengst
af hafa sorgarrannsóknir haft
meiri hliðsjón af sorgarreynslu
kvenna en karla.
Þegar helminginn vantar
Það er algeng upplifun í hópi
ekkla að finnast eins og þá vanti
hluta af sér þegar konan þeirra
deyr. Margir þeirra finna líka
óþyrmilega fyrir því að verkefni
konunnar í lífi þeirra, sérstaklega
í því sem víkur að tilfinningaleg-
um þáttum, barnauppeldi, fjöl-
skyldutengslum og heimilishaldi,
eru víðtækari en þeir gerðu sér
grein fyrir Þetta á sérstaklega við
um ekkla, sem hafa mikið verið
fjarri heimilinu vegna mikillar
vinnu. Fyrir marga þeirra sem
eru með ung börn er þetta eitt
erfiðasta verkefnið.
Margir ekklar standa frammi
fyrir þeirri staðreynd, að konan
þeirra hafi líka verið besti vinur
þeirra. Einmanaleiki er algeng
upplifun. Margir finna fyrir sterkri
upplifun endurminningabrota.
Breytt tengsl við fjölskyldu,
vinnufélaga og vini, fylgja í kjöl-
farið. Hverjir eru eiginlega vinir í
raun? Allt of margir ekklar flýja
inn í heim vímunnar. Þaðan eru
þung spor til baka. Sumir hefja
konuna í dýrlingatölu. Sorgarferl-
ið og dýpt þess skelfir marga
ekkla og þeir óttast að missa
stjórn á lífi sínu og finnst að þeir
séu að missa geðheilsuna. Ekkill-
inn þarf að læra að taka á verk-
efnum lífsins „einn".
Feður sem uppalendur
I samfélagi okkar bera mæður
ríkari ábyrgð á uppeldi barna en
feður og því eiga sér stað tölu-
verð umskipti þegar faðirinn
tekur einn við ábyrgðinni og fær,
a.m.k. fyrstu mánuðina eða árin
á eftir (margir syrgja þó mun
lengur), það erfiða verkefni að
sinna eigin sorg og hugga jafn-
framt börnin sfn. Ekklar virðast
þó að einu leyti fá meiri stuðn-
ing en ekkjur; þeim er oftar
boðið í mat. Það er eins og sam-
félagið í kringum þá reikni ekki
með að þeir kunni að elda mat.
En matarboðin eru líka tækifæri
til að halda tengslum og kanna
hvort allt sé í lagi.
I þeim hluta sem snýr að
rekstri heimilisins kemur í Ijós að
ekklar í okkar samfélagi hafa
afgerandi meiri tekjur en ekkjur
I þeim hluta sem snýr að tilfinn-
ingalegum þáttum og félagsleg-
um þurfa feður að hafa meira
fyrir því að skapa sér ákveðinn
sess sem uppalendur og fyrir
ekkla er það verkefni enn
stærra.
Nýja fjölskyldan
Hverjir eiga sorgina? Við eigum
hana öll, en stundum látum við
eins og það séu bara hinir nán-
ustu, mér liggur við að segja
kjarnafjölskyldan, sem fær
stuðninginn til sín, en aðrir
gleymast. Oft gleymist sorg
barna. Oft gleymist Ifka sorg
eldri foreldra, sem missa full-
orðna dóttur frá ungum börn-
um. I Margir í þeim hópi vilja
veita stuðning, en vita vart
hvernig. Ekkillinn fær að segja
sitt og halda sinni stefnu, en
hvort hann fær leiðsögn er
annað mál. Ef ekkillinn stofnar
hins vegar til nýs sambands, þá
verða til margs konar flækjur.
Fyrrverandi tengdaforeldrar
hans líta auðvitað ekki á sig sem
fyrrverandi afa og ömmu barna-
barnanna og nýja fjölskyldan,
sem verður til við nýja hjóna-
band ekkilsins, þarf að hafa í
huga margvi'slegar skyldun sem
blasa ekki við fyrr en grannt er
skoðað. „Það er erfitt að vera
„fyrrverandi". „Það er svo oft
þannig að það sem var einu
sinni svo einfalt, er það ekki
lengur. Nú er maður gervi-
þetta eða gervi- hitt og fyrrver-
andi þetta og fyrrverandi hitt.
Eg er gerviafi fyrir barnabörn
konunnar minnar og fjölskylda
fyrri konu minnar, sem ég missti,
vill hafa samband við börnin
okkar; en ekki mig, Það er eins
og að þau hafi verið eingetin."
Þeir ekklar sem fara of fljótt í
annað samband lenda margir í
miklum hremmingum. Nýja
sambandið rúmar illa saman-
burð síðari maka við hina fyrri,
sérstaklega ef hin fyrri er í
dýrlingatölu. „Hann er giftur
mér núna, en hann getur ekki
hætt að hugsa um fyrri konuna
sem hann missti. Hann sagði
mér aldrei að þetta væri svona
erfitt. Mér finnst hann hafa svik-
ið rrnig."
Hvernig á mér að líða?
Sorgin er einkamál á Islandi og
þess vegna eru sýnilegar fyrir-
myndir fáar og jafnvel ekki fyrir
hendi innan fjölskyldnanna.
Margir eru tilbúnir að veita leið-
beiningar um hvernig manni á
að líða. Færri eru tilbúnir að
hlusta, gefa sér tíma, gefa af
nærveru sinni. Ég einn veit
hvernig mér líður. Og ég er
sjálfum mér samkvæmur; þá er
það rétt líðan fyrir mig, sama
hvað aðrir segja. En það er erf-
itt að vera öðru vísi en aðrir
Mér myndi aldrei koma til hugar
að fara að segja nokkrum
hvernig mér líður Hver gæti svo
sem höndlað það? Þegar ein-
hver spyr mig: „Ertu ekki hress?"
þá svara ég ævinlega: „Jú, heldur
betur."
Dauðinn er bergmál lífsins.
Viðhorf okkar til lífsins berg-
mála líka í viðhorfunum til
dauðans. ■
51