19. júní - 19.06.2000, Qupperneq 54
Mín kona á 20. öldinni
Ef litið er um öxl á árþúsundamótum verður fljótt Ijóst hve gífurlegar breytingar hafa orðið á lífinu í landinu á 20. öldinni. Við
hugsum með aðdáun um hvernig gengnar kynslóðir lögðu grundvöllinn að velmegunarsamfélagi nútímans. Konur unnu braut-
ryðjendastarf í mörgum greinum og mörkuðu djúp spor í sögu samtíðar sinnar við ótrúlega erfiðar aðstæður. Gunnhildur
Hrólfsdóttir leitaði svara við spurningunni „Hver er þín kona á 20. öldinni og á hvern hátt hefur hún mótað þig og samtíð
sína?"
Björg Andrésdóttir
húsmóöir frá Eskifirði
„Ég minnist margra kvenna sem voru
merkilegar á sinni tíð en ég held ég
nefni Halldóru Bjarnadóttur. Hún
stofnaði kvennablaðið Hlín sem var í
hennar umsjón í 43 ár Valgerður
móðir mín keypti blaðið og allir í
fjölskyldunni höfðu gaman af.‘‘
Halldóra var fædd árið 1873. Hún
stundaði nám í Noregi á árunum
1896-1899 og varð síðar skólastjóri á
Akureyri. Um Halldóru er sagt að hún
hafði lagt grundvöll að skólamálum
þjóðarinnar og átt mikinn þátt í að gera Akureyri að menntasetri.
Hún beitti sér fyrir stofnun Sambands norðlenskra kvenna og var
tilgangurinn að efla samúð og samvinnu meðal kvenna á félagssvæð-
inu. Konur í sambandinu beittu sér fyrir leiðbeiningum í garðyrkju
heimila. Halldóra helgaði sig kennslu, heimilisiðnaði og félagsmálum
kvenna. I 33 ár ferðaðist hún um land-
ið og kenndí bæði vefnað og hannyrð-
ir
Björg minnist þessarar merku konu
er hún fór um landið og kenndi
konum að prjóna svonefndan „Hall-
dóruhæl". A þessum tíma var hart í ári
og rann Halldóru til rifja innflutningur
á grófum leistum til sjómanna. Hún
rakti upp skoska leista og lærði þannig
hælinn, sem seinna breiddist út um
landið ásamt leistunum. Settar voru
fastar, ákveðnar reglur um þyngd, lag,
númer og verð. Framleiðslan gekk
ágætlega og salan greiðlega. ,,A þeim tíma þótti fínt að ganga í lopa-
leistum með Halldóruhæl og uppreimuðum klossum," segir Björg
um konuna sem með Guðs hjálp og aðstoð góðra manna helgaði
starfskrafta sína kennslu og leiðbeiningum í þeim efnum sem hún
áleit holl og heilsusamleg fyrir þjóðina. ■
Ásbjörg Una
nemi í bókmenntafræði í Háskóla íslands og félagi í
Bríeti-Félagi ungra feminista
aðrar Svo að ég legg til að allar kvenréttindakonur fái titillinn þvf að
þær eiga það allar skilið. Ég vil krýna allar þessar konur ...þessa fyrir-
rennara mína sem hafa gert mig það sem ég er í dag og ég vona að
ég eigi eftir að hjálpa einhverjum í framtíðinni," segir Ásbjörg Una
en hún er í félagi kvenna sem kenna sig við baráttukonuna Bríeti
Bjarnhéðinsdóttur.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir fæddist 27.
september 1856 í Húnavatnssýslu og
gekk í kvennaskólann á Laugalandi í
Eyjafirði. Ritgerð hennar „Nokkur orð
um menntun og réttindi kvenna, eftir
unga stúlku í Reykjavík" birtist í Fjall-
konunni 1885. Þetta var fyrsta ritgerð
sem komið hafði út hér á landi eftir
konu og var mörgum getum að því
leitt hver höfundur hennar væri. Hún
var einnig fyrsta konan sem hélt fyrir-
lestur á Islandi. Bar hann nafnið „Kjör
og réttindi kvenna". Briét gaf út Kvennablaðið 1895-1920, blað um
réttindi kvenna til sömu starfa og launa og karlar Einnig ferðaðist
hún um landið og hélt fyrírlestra um réttindabaráttu kvenna. Briét
stofnaði Kvenréttindafélag Islands 27. janúar árið 1907. Verkefni
félagsins hefur verið að vinna að fullu jafnrétti kvenna og karla. Kven-
réttindafélagið beitti sér einkum fyrir því að ná fram stjórnmálaleg-
um réttindum, kjörgengi og kosningaréttí, sem íslenskar konur síðan
öðluðust með stjórnarskrárbreytingu 19. júní 1915. ■
„Mín kona á 20. öldinni er allt í senn,
hugrökk, sterk, og réttsýnn frumkvöð-
ull. Ekkert gat stöðvað hana og hún
hafði ótrúlegt úthald íbaráttu sinni fyrir
réttindum kvenna til sömu starfa og
launa og karlar Ég tel að allar konur
sem hafa staðið í kvenréttindabarátt-
unni eigi það vel skilið að vera kallaðar
kona aldarinnar Þær hafa allar lagt bar-
áttunni mikið lið og mér finnst það
ósanngjarnt að nefna einhverja eina
bara því að hún hefur verið sýnilegri en
1
54