19. júní - 19.06.2000, Page 58
Bleik blómaveröld og
spennandi ævintýraheimar
Markaðurinn hefur sterk
áhrif. Ekki aðeins á líf fullorð-
inna. Börn fara ekki varhluta
af öflugri markaðssetningu á
íhaldssömum hugmyndum um
hlutverk og eðli kynjanna.
Elfa Ýr Gylfadóttir kynnti sér
hvernig herferðin fer fram í
gegnum fjölmiðla og leik-
fangabúðir.
)
Sjónvarpsefni fyrir börn er
menningarlegar afurðir sem líkja
að mörgu leyti eftir afþreyingar-
efni fullorðinna. Hasarmyndir; vís-
indaskáldsögun dans- og söngva-
myndir, sápuóperur og meló-
drama eru kvikmyndagreinar
sem einnig má sjá í sjónvarpsefni
sem markaðssett er fyrir börn.
Munurinn er hinsvegar sá að
sjónvarpsefni sem ætlað er
börnum endurspeglar ekki
aðeins kvikmyndahefðir fullorð-
inna heldur má sjá öfgafulla
útgáfu af sömu hefðum þar sem
kynferði persóna er ýkt. Þannig
hafa kvenpersónur í barnaefni
oft háa og jafnvel skræka rödd,
umhverfið einkennist af pastellit-
um, pífur og blúndur eru ráðandi
og kvenpersónurnar eru afskap-
lega vel hærðar. Ennfremur eru
kvenpersónurnar ávallt skilnings-
ríkar; hjálpsamar og hafa samúð
með þeim sem minna mega sín.
Karlarnir eru aftur á móti vöðva-
stæltir súper-karlar sem tala með
djúpri rödd, sannkölluð testó-
steróntröll. Þeir eru óhræddir
ævintýramenn sem sýna hug-
rekki við erfiðustu aðstæður.
Barnaefni hefur því
fengið margt að láni frá
kvikmynda- og sjón-
varpshefð fullorðinna og
í mörgum tilvíkum stað-
festir það á enn afdráttar-
lausari hátt stereotýpur held-
ur en sjónvarpsefni ætlað full-
orðnum.
\
\
\
I
Strákar í aðalhlutverki
Framleiðendur sjónvarpsþátta,
teiknimynda og kvikmynda hafa
iðulega framleitt barnaefni þar
sem karlpersónurnar eru í aðal-
hlutverki í hasarfullri atburðarás.
Karlpersónurnar hafa samkvæmt
hefð verið í aðalhlutverki vegna
þess að því hefur verið haldið
fram að drengir horfi aldrei á
afþreyingarefni ætlað stúlkum en
stúlkur horfi hinsvegar gjarnan á
barnaefni ætlað drengjum. Þessi
hefð á rætur að rekja til barna-
bókahefðarinnar á nítjándu öld.
Því hefur barnaefni í sjónvarpi
líkt og í mörgum barnabók-
menntum sýnt hvíta stráka í
aðalhlutverki atburðarásarinnar
Börn af öðrum kynþáttum og
stúlkur eru því iðulega í auka-
hlutverkum sem félagar aðalhetj-
unnar eða sem fórnarlömb.
Ennfremur eru hetjur og
vopn fastur liður í sjónvarpsefni
ætluðu drengjum. Slikir þættir
einkennast einnig oft af kímni,
hröðum klippingum og líflegri
atburðarás. Leikföng sem mark-
aðssett eru fyrir drengi í tengsl-
um við slíka sjónvarpsþætti eru
einnig í mikilli andstöðu við
pastellituðu leikföngin sem ætluð
eru stúlkum og þeirri stelpnaver-
öld sem vírðist yfirleitt vera
fremur laus við fyndni og glettni.
I sjónvarpsefni sem ætlað er
drengjum er því lögð áhersla á
hugrekki, styrk og áræðni aðal-
persónanna sem kemur bæði
þeim sjálfum og öðrum til
góða í þáttunum - því auð-
vitað þarf einhver að bjarga
heiminum.
Skuggalegir sjónvarpsþættir
og slímkennd leikföng
Ef tekið er dæmi af sjónvarps-
þáttunum Ghostbusters og leik-
föngunum sem fylgdu þáttunum
má sjá að kynnt voru til sögunn-
ar skrímsli, slímkennd og Ijót leik-
föng sem gátu breytt sér á ýmsa
vegu. Onnur nýleg dæmi um
skuggaleg leikföng eru búning-
arnir og vopnin sem seld eru í
tengslum við nýjustu Star Wars
myndina þar sem mörg klæðin
eru svört og grímurnar óhuggu-
legar á að líta. I barnaefni sem
er ætlað drengjum eru stúlkur
eða konur yfirleitt ekki jafnokar
karlanna og þær eru oft hjálpar-
lausar og þeim þarf stundum að
bjarga. Ennfremur eru þær ekki
hetjur í þáttunum þar sem þær
eru oft víðsfjarri þegar strákarnir
þurfa að berjast og sýna hug-
rekki.
I sjónvarpsþáttunum Ghost-
busters er kvenpersónan Janine til
að mynda einskonar móður-
ímynd fyrir hetjurnar í þáttunum.
Hún gefur sögupersónum að
borða og sinnir ýmsum
öðrum veraldlegum þörfum
þeirra á meðan hetjurnar
berjast við drauga. Hún er
því ekki jafnoki karlpersón-
anna og vantar hugrekkið
og uppátektarsemina.
58