19. júní - 19.06.2000, Side 71
undan hugmyndum sem maður
hélt að væru hjálplegar en eru
það alls ekki þegar betur er að
gáð."
Hvernig gekk þér að lesa Freud?
„Eg byrjaði að lesa hann með
drjúgan skammt af fordómum,
en það kom mér skemmtilega á
óvart hvað var gaman að lesa
hann. Freud skrifar mjög skýran
og aðgengilegan texta, það er
svolftið eins og hann sé að
hugsa upphátt og útskýra jafn-
óðum kenningar sínar fyrir les-
andanum. Það sem hann skrifar
er þó misjafnlega áhugavert og
einna helst hefur hann hefur
verið gagnrýndur fyrir kenningar
sínar um mótun kvenna. Hann
viðurkenndi fúslega sjálfur að
hann áttaði sig illa á konum,
þ.e.a.s. hvað það væri sem gerði
konur að konum. Hann var lit-
aður af þeim hugsunarhætti að
karlmaðurinn væri æðra kynið
og taldi konur upplifa sig síðri
karlmanninum. Freud tengir
þetta við líffræðilegan mun kynj-
anna, að örlög konunnar ráðist
af því að hana vanti getnaðarlim
og því sé kjarninn í sjálfsmynd
hennar vöntun og öfund í garð
karlmanna. Þetta telur hann
varpa Ijósi á vanmáttarkennd
kvenna og undirokun þeirra, en
hvort tveggja rekur Freud til
þess að þær vanti þetta merki-
lega líffæri."
Ýmislegt orkar tvímælis
Eftir að hafa lesið Freud , skil-
ur þú það sem hann segir um
konur?
,,Eg skil og skil ekki. Mérfinnst
ýmislegt orka tvímælis, sérstak-
lega eftir að hafa lesið gagnrýni
á kenningar hans og kynnt mér
fleiri hugmyndir; og er auðvitað
ekki ein um að telja Freud hafa
verið á villigötum þegar kom að
útskýringum hans á mótun
kvenna."
Getur þú sagt okkur aðeins
um það þegar farið var að end-
urskoða og endurmeta kenningar
Freuds?
„Það hefur í raun farið fram
endurskoðun og endurmat á
kenningum hans frá fyrstu tíð.
Það sem er óbreytt frá kenning-
um Freuds er áherslan á mikil-
vægi barnæskunnar og áhrif
undirmeðvitundarinnan því sál-
greiningin gengur út frá því að
forritið að persónuleikanum sé
að miklu leyti búið til á fyrstu
árum ævinnar Fókusinn hefur
hins vegar færst frá bernskunni
til frumbernskunnar og frá
föður til móður. Eins og við
komum inn á áðan þá var Freud
mjög upptekinn af mikilvægi
karlmannsins og þá ekki síst
mikilvægi föðurins, en eftir hans
daga hefur móðurinni verið
gefið mun meira vægi. Inn í þá
umræðu hafa komið kenningar
femim'skra sálgreina, en þeim
fannst mikið vanta upp á eigin
skilning og annars fagfólks á
konum sem eiga í stríði við lík-
ama sinn eða eru háðar karl-
mönnum sem misbjóða þeim
andlega og líkamlega. Þær ótt-
uðust að sálgreiningu væri beitt
sem aðlögunaraðferð til að fá
konur til að sætta sig við hlut-
skipti sitt á grundvelli með-
fæddra eiginleika í samræmi við
kenningar Freuds um að konan
væri fædd síðri karlinum. Þessu
höfnuðu þær og horfðu þess í
stað til áhrifa tengslamyndunar.
Til þess að skilja hvernig við
öðlumst vitund um okkur sjálf
sem karl eða konu fannst þeim
lykilatriði að skoða hvaða áhrif
það hefur að bæði kynin kynn-
ast heiminum í tengslum við
sterka og máttuga konu. Þessi
fyrstu tengsl hafa ólík áhrif á
sjálfsmynd drengja og stúlkna og
ekki síst, á ómeðvitaða afstöðu
þeirra til kvenna."
„Hættu nú að leika sál-
greini mamma!"
Var erfitt að fara út! nám
með fjölskylduna og breyta
algjörlega um lífsstíl?
„Við fórum öll saman, maður-
inn minn, börnin og ég, og þetta
var ómetanleg lífsreynsla. Fyrsta
árið var ansi erfitt, en þegar á
heildina er litið er þetta einhver
besti tími sem ég hef lifað. Við
bjuggum í litlum bæ í norður af
London og vorum eins og hverj-
ir aðrir námsmenn. Ég var þrítug
og á alveg réttum tímapunkti til
að fara í svona erfitt nám. Þetta
var mjög krefjandi en ánægju-
legur tfmi og í dag hugsum við
fjölskyldan um þennan tíma
með góðri tilfinningu."
Kemur fjölskyldan þín stundum
og leggst á bekkinn?
„Nei," segir Sæunn og hlær,
„ekki nema til að hvíla sig! Nei,
maður getur Iftið gert fyrir fjöl-
skyldu sína í svona málum."
Það yrði kannski of erfitt?
„Já, krakkarnir mfnir segja nú
stundum: „Æ, góða mamma,
hættu nú að leika sálgreini við
okkur,” þegar þeim finnst ég
ganga of langt í sálfræðilegum
útskýringum. En auðvitað er ég
mótuð af þessum kenningum
og þeirri þekkingu sem mér
finnst ég hafa, líka þegar ég er
að tala við bömin mfn, en maður
verður auðvitað að passa sig, ég
get ekki og á ekki að vera með-
ferðar aðili þeirra."
Nýtir hugmyndir feminískra
sálgreina
Hefur þú nóg að gera?
„Já, ég hef það, fólk er yfirleitt
í langtfmameðferð hjá mér. Það
vill vita meira um sjálft sig, og
það tekur langan tíma að byggja
upp traust og finna sig það
öruggan að hægt sé að slaka á
hömlunum. I sálgreiningarmeð-
ferð ertu að reyna að nálgast
það ómeðvitaða og það gerist
ekki með þvf að bretta upp
ermarnar og einsetja sér að
komast til botns í hlutunum í
einhverjum flýti. Svona meðferð
byggist þvf ekki á spurningum
og svörum. Við erum öll með
sterkar varnir; partur af okkur
vill fá að vita hlutina og komast
lengra og breytast en það er
annar partur sem vill það alls
ekki og streitist á móti. I viðtöl-
unum mælist ég til þess að fólk
tali um hvaðeina sem kemur
upp f hugann, sé ekkert sérstak-
lega undirbúið, tali um fantasíur;
dagdrauma og um okkar sam-
skipti. Með þvf móti sneiðir
maður fram hjá ritskoðuninni
og skynseminni og fær vísbend-
ingar um það sem er ómeðvit-
að, en mitt hlutverk er einmitt
að hlusta eftir þeim.
Hvernig líður þér þegar með-
ferðinni er lokið, þú kveður við-
komandi og veist að meðferðin
hefur tekist vel?
„Fólki sem kemur til mfn Ifður
oft mjög illa, margir eiga að baki
sára lífsreynslu og eru að takast
á við erfiða hluti, en það eru
mörg augnablik sem gefa þessari
vínnu gildi. Til dæmis þegar ég
finn að það hefur orðið einhver
tenging og breyting sem verður
til þess að fólk fær nýja sýn. Það
eru forréttindin við þetta starf,
að fá að vera þátttakandi í
breytingum sem skipta fólk
verulegu máli."
Sæunn, lítur þú á þig sem femin-
ískan sálgreini?
„Eg hef alltaf verið svolítið hik-
andi við að setja á mig merki-
miða, en ég nýti mér hugmyndir
feminfskra sálgreina og finnst
þær mjög gagnlegar t.d. við að
skoða hvernig konur upplifa
sjálfar sig, en þá horfi ég m.a. til
tengsla þeirra við mæður sfnar.
Mér finnst mikilvægt að sanka að
mér allskonar kenningum, þær
eru gagnabankinn minn, og svo
tfni ég út það sem ég tel vera
nýtilegt fyrir hvern og einn." ■
71