Fréttablaðið - 03.12.2010, Page 18
18 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Skiptar skoðanir um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2011
Fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar, sem lögð var
fyrir borgarstjórn á þriðju-
dag, hefur valdið miklum
úlfaþyt, enda eru þar lagðar
til hækkanir á sköttum og
þjónustugjöldum, sem sjálf-
stæðismenn í minnihlutan-
um hafa mótmælt harðlega.
Samkvæmt meirihluta Besta
flokksins og Samfylkingar lá fyrir
að brúa þurfti um fimm milljarða
gat milli fyrirhugaðra tekna og
gjalda borgarinnar á næsta ári.
Í áætluninni er farin svokallaða
blandaða leið þar sem 2,9 milljarð-
ar eru fengnir með hagræðingu í
rekstri, 844 milljónir með hækkun
skatta og 919 milljónir með gjald-
skrárhækkunum og magnbreyt-
ingu í þjónustu.
Það sem helst er deilt um eru
gjaldskrárhækkanirnar. Þær eru
á allflestum liðum en koma meðal
annars niður á leikskólagjöldum,
lækkun systkinaafsláttar og hækk-
unum í frístundaheimili við grunn-
skólana.
Nauðsynlegar aðgerðir
Meirihlutinn hefur varið þessar
hugmyndir með því að þær séu
gerðar af nauðsyn. Dagur B. Egg-
ertsson, formaður borgarráðs,
sagði meðal annars í samtali við
Fréttablaðið að gengið hafi verið
út frá því að jafnvægis væri gætt
annars vegar á milli þess að hlífa
fjölskyldum við álögum og hins
vegar að sjá til þess að varanlegur
sparnaður næðist af aðgerðunum.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
segja hins vegar að hækkanirnar
á sköttum og gjöldum muni bæði
hægja á umsvifum í samfélaginu
og lengja kreppuna. Margsannað
sé að aukin skattlagning virki ekki
sem leið út úr kreppum.
Bitnar á barnafjölskyldum
Eins og fram hefur komið telja
sjálfstæðismenn hækkanirnar vera
tilviljanakenndar. Þær muni koma
harðast niður á barnafjölskyldum
þar sem útgjaldaauki vegna þeirra
gæti numið allt að 100 þúsundum
til 150 þúsunda króna á ársgrund-
velli.
Þar af gætu útgjöld vegna skóla
og leikskóla eingöngu, fyrir fjöl-
skyldu með tvö börn í leikskóla og
eitt í grunnskóla, aukist um tæp
100 þúsund.
Vinstri græn í borgarstjórn eru
sömuleiðis ósátt við áætlunina, en
af öðrum ástæðum. Sóley Tómas-
dóttir, oddviti þeirra, sagði í við-
tali við Fréttablaðið að alvarleg-
ast væri að ekki væri gengið alla
leið í hækkun útsvars. Í stað þess
að hækka útsvarsprósentuna upp
í 13,28 sé örlítið skilið eftir, og sú
fjárhæð sem þar hefði mátt afla,
um 230 milljónir króna, sé þess
í stað tekin af barnafólki í formi
aukinna álagna.
Mannaflsfrekar framkvæmdir
Hvernig sem á málið er litið, virð-
ast hækkanir hafa verið óumflýj-
anlegar að vissu leyti. Það sem er
hins vegar einnig deilt um, eru ný
verkefni sem lagt er út í. Meðal
annars er gert ráð fyrir að ýmsum
vinnuaflsfrekum framkvæmdum á
vegum borgarinnar verði flýtt til
að örva atvinnulíf. Meðal annars
er gert ráð fyrir að 500 milljónum
króna verði varið í að hefja fyrsta
áfanga við endurgerð sundlauga-
mannvirkja.
Telja sjálfstæðismenn óráð-
legt að leggja út í þann kostnað á
meðan skattar séu hækkaðir og
ekki sé skorið meira niður í mið-
lægri stjórnsýslu.
Ekki er enn útséð um lokaútgáfu
fjárhagsáætlunarinnar þar sem
hún kemur aftur til kasta borgar-
stjórnar í seinni umræðu 14. þessa
mánaðar þar sem málið mun skýr-
ast endanlega.
Ósammála um hagræðingarleiðir
FARIÐ YFIR MÁLIN Jón Gnarr borgarstjóri á skrafi við S. Björn Blöndal, aðstoðarmann sinn, og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Þau eru
ekki á einu máli um leiðir til hagræðingar í fjármálum borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Einn af helstu kostnaðar-
aukunum í fjárhagsáætlun
er vegna þess að framlög
til framfærslustyrks hafa
aukist úr 1.553 milljónum
upp í 2.116 milljónir. Er
það tilkomið bæði vegna
hækkunar grunnfjárhæðar,
sem og áætlaðrar fjölgun-
ar styrkþega. Framfærsla
einstaklings fer úr 125.540
krónum á mánuði upp
í 149.000 og framfærsla
fólks í sambúð úr 200.864
krónum upp í 223.500.
Alls er gert ráð fyrir að
3.800 manns muni þiggja
aðstoð á næsta ári, en
áætlað eru að um 3.600
manns geri það í ár.
Framfærslustyrkur hækkar
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
2010 2011
Leikskólagjöld fyrir
tvö börn
Skólamatur í
grunnskóla
Fimm daga vistun
á frístundaheimili
Síðdegishressing
á frístundaheimili
36.170
45.318
32%
2.150
8.365
5.000
20.655
2.580
10.038
5.500
27.200
10%
20%
20%
Kostnaðarauki fjölskyldu með tvö börn í leikskóla og
eitt í grunnskóla
Mánaðarútgjöld í krónum. Aukning milli ára er sýnd í prósentum. Samtals kostn-
aðaraukning milli ára er 25%.
Heimild: Reykjavíkurborg
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Gjaldahækkun á flestum sviðum
Í tilkynningu meirihlutans með fjárhagsáætluninni segir að ákveðin þjónustugjöld „hækki
hóflega til að koma til móts við raunlækkun eftir tveggja ára frystingu“. Í áætlun um gjaldskrá
næsta árs sést að gert er ráð fyrir hækkun á flestum sviðum en mismikilli þó. Hér eru nokkrir
liðir dregnir út.
Þjónustuliðir 2010 2011 Munur
Þjónustuíbúðir aldraðra
Þvottur (1/2 kg) 155 200 29,03%
Heimaþjónusta/þrif (pr. klst) 530 1000 88,68%
Sundlaugar
Barnagjald í sund 110 100 -9,09%
Fullorðinsgjald í sund 360 450 25%
Leiga á handklæði 450 550 14,29%
Leiga á sundfatnaði 600 500 -16,67%
Menning og afþreying:
Húsdýragarður um helgar – börn 500 600 20%
Húsdýragarður um helgar – fullorðnir 600 700 16,67%
Bókasafnskort 1.300 1.500 15,38%
Fullorðinsmiði í Árbæjarsafn 600 1000 66,67%
Lokað í dag
Skrifstofa VR í Reykjavík verður
lokuð í dag frá kl. 11:00, föstudaginn
3. desember, vegna jarðarfarar
Ingibjargar R. Guðmundsdóttur.
Skrifstofur VR á Akranesi,
Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum
verða lokaðar allan daginn.