Fréttablaðið - 03.12.2010, Qupperneq 38
4 föstudagur 3. desember
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
? Kæra Sigga Dögg. Ég á kærasta sem ég hef verið með í um hálft ár núna. Hann á barn með fyrrverandi sinni og þau deila forræðinu yfir barninu. Ég
er sjálf barnlaus og á mjög erfitt með mig í þessum aðstæðum, ég veit ekki hvað
ég má og má ekki sem „stjúpa“. Svo finnst mér líka erfitt hvað kærasti minn
og fyrrverandi hans tala mikið og oft saman, mér finnst eins og þetta sé sam-
band þriggja aðila og ég kann bara að vera í tveggja manna sambandi. Mig
bráðvantar hjálp.
Svar: Það er aldrei auðvelt að vera „þriðja hjólið“,
eins og þú segir. En einhvern veginn byrjar maður
að hjóla og eins og á æskuárunum nær maður besta
jafnvæginu á þríhjóli!
Það eru nokkrir þættir í vandamáli þínu sem þarf
að skoða. Ef við byrjum á barninu þá þarft þú að
byrja á því að ræða við kærastann þinn og fá hann
til að skilgreina þitt hlutverk í tengslum við barnið,
hvað má og hvað ekki. Þá væri ekki ósniðugt fyrir
þig að kynnast barnsmóður hans líka og bera undir
hana hvernig hún hagi uppeldinu þá daga sem
barnið er hjá henni. Það er mjög mikilvægt fyrir
barnið að þið fullorðna fólkið samræmið aðgerðir.
Það er ekkert algilt þegar kemur að barnauppeldi og
því þarf að spyrja og fá hlutina á hreint.
Þú minnist á að kærasti þinn og barnsmóðir hans
tali mikið saman og ætla ég að gefa mér að þar séu
ekki mikil leiðindi á ferð. Fyrst svo er, þá er um að
gera að styrkja þessi bönd enn frekar því þú ert
núna í sambandi þriggja aðila. Maður sem á barn er þegar með mann-
eskju í fyrsta sæti hjá sér og þar er engin samkeppni á ferð. Það er þitt
að spila vel úr aðstæðum því hér er líf lítillar manneskju í forgangi og
því þarft þú að sníða þitt samband eftir því.
Þú segist bara kunna að vera í tveggja manna sambandi en ef þú vilt
vera með þessum manni þá verðið þið í það minnsta alltaf tríó en ekki
dúett. En ef þú ert ekki tilbúin í þetta hlutverk og ekki tilbúin að læra
að takast á við nýjar aðstæður þá er það á þinni ábyrgð að gera það
upp við sjálfa að fara og finna þér annan maka. Gangi þér ofsalega vel,
óháð því hvaða ákvörðun þú tekur!
Maður
sem á
barn er þegar
með mann-
eskju í fyrsta
sæti hjá sér og
þar er engin
samkeppni á
ferð. Það er þitt
að spila vel úr
aðstæðum því
hér er líf lítillar
manneskju í
forgangi.
Besta jafnvægið á þríhjóli
D
anska fyrirsætan Helena
Christensen hefur löng-
um þótt ein fallegasta kona
heims. Hún deilir tíma sínum á
milli Kaupmannahafnar og New
York og á einn son sem hún segir
vera það eina sem skipti hana
máli í lífinu.
● Faðir Christensen er danskur en
móðir hennar er frá Perú.
● Hún var kosin Ungfrú Dan-
mörk árið 1986, þá 18 ára gömul.
Hún keppti fyrir hönd Danmerk-
ur í Ungfrú Heimur en vann þá
keppni ekki.
● Hún var í sambandi með söngv-
ara hljómsveitarinnar INXS,
Michael Hutchence, í fimm ár.
Þau flökkuðu um heiminn saman
og bjuggu til skiptis í Danmörku
og Frakklandi.
● Christensen er mjög hrifin af
hvers kyns ostum og hefur meðal
annars sagt að þegar henni líði illa
leiti hún í einfalda hluti eins og
„ost og kynlíf“.
● Hún starfar nú sem ljósmyndari
og hefur sett upp nokkrar einka-
sýningar. Verk hennar hafa að auki
verið birt í tímaritum á borð við
Nylon, Marie Claire og ELLE.
FIMM HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM:
Helenu Christensen
Fögur Helena þykir ein fallegasta
kona heims.
Ung og frískleg Helena Christensen
sem ung stúlka að stíga sín fyrstu
skref sem fyrirsæta. NORDICPHOTOS/GETTY
Ástfangin Helena ásamt þáverandi
kærasta sínum, söngvaranum
Michael Hutchence.
Hversdagsleg Helena klædd í
víðar buxur og vinnuskó árið
2004.