Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2010, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 03.12.2010, Qupperneq 40
6 föstudagur 3. desember Alda Björg Guðjóns- dóttir er einn fremsti stílisti landsins og hefur starfað sem slíkur allt frá árinu 1999. Hún rekur fyrirtækið Snyrtilegan klæðnað og þrátt fyrir óreglulegan vinnutíma segist hún ekki geta ímyndað sér betra starf. Blaðamaður: Sara McMahon Ljósmyndir: Anton Brink Fatnaður á forsíðu: Steinunn A lda Björg ólst upp á Álftanesinu og býr þar enn með börn- um sínum fjórum í næsta húsi við for- eldra sína. „Álftanesið er æðis- legur staður til að búa á, þó það hafi verið erfitt þegar maður var unglingur því þetta var svo langt í burtu frá öllu. Til lengri tíma litið þá held ég að það hafi bara gert manni gott að vera hálf fast- ur í sveitinni á þessum aldri. Ég bý þarna enn og mér finnst yndislegt að komast alltaf í frið- inn að vinnudegi loknum,“ segir hún glaðlega. Alda var einbirni fram að unglingsaldri en eignaðist þá tvö systkini sem bæði voru ætt- leidd frá Srí Lanka. Hún segist hafa verið dugleg að passa syst- kini sín enda hafi hún þá verið komin með nóg af því að vera eina barnið í fjölskyldunni. Að hennar sögn er fjölskyldan mjög náin og líkir hún henni við stóra, ítalska fjölskyldu. „Við erum eins og samhent, ítölsk stórfjölskylda án dramatíkurinnar. Við hitt- umst alla sunnudaga og borðum saman og mér finnst voðalega gaman að hafa þau öll í kringum mig,“ segir hún. FYLGDI BOY GEORGE Móðuramma Öldu rak sauma- stofu hér áður fyrr og vann móðir hennar einnig á stofunni. Alda var sjálf ekki há í loftinu þegar hún fór að aðstoða ömmu sína á stofunni og vann við að ýfa ull í ströngum í könglavél. Hún byrj- aði líka snemma að sauma sjálf á sig flíkur og mætti svo galvösk í þeim í skólann. „Ég var alltaf mjög undarlega klædd. Ég skar mig mjög úr hvað það varðaði og man sérstaklega eftir því þegar ég kom klædd eins og Boy George í skólann. Það vakti mikla athygli,“ segir hún brosandi. Alda segist lítið hafa spáð í áliti bekkjarsyst- kina sinna enda skipti mestu máli að hún sjálf væri sátt í fötunum. „Ég hef alltaf verið nokkuð örugg með sjálfa mig og pældi aldrei í því hvað öðrum fannst svo lengi sem ég var sátt við dressið sem ég var í.“ SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR Tískuáhuginn dvínaði ekki með aldrinum og árið 1998 stofnaði Alda saumastofu ásamt tveim- ur vinkonum sínum. Út frá þeirri vinnu fór hún að taka að sér ýmis stílistaverkefni og ári síðar hafði hún snúið sér alfarið að þeirri iðn. „Vinna stílista getur verið nett geggjun og vinnutíminn óguðlegur en það sem heillar mig mest við starfið er hversu fjölbreytt það er,“ segir hún þegar hún er spurð út í kosti starfsins. „Því fylgja ferða- lög og mér gefst einnig tækifæri á að sjá staði á Íslandi sem aðrir fara ekki á, því tökurnar eru oft úti á landi.“ Alda vinnur einna mest við sjónvarpsauglýsingar, myndatök- ur, tískuþætti og tónlistarmynd- bönd og sér þá um að klæða leik- ara, fyrirsætur og poppstjörn- ur samkvæmt nýjustu tísku. Hún segist þó ekki spá mikið í því sem gerist í heimi tískunnar held- ur treystir frekar á eigin smekk- vísi. „Ég gæti ekki svarað því hvað verður heitast í tískunni næsta sumar, ég fylgist lítið með því. Ég held að það sé betra að fylgja eigin tilfinningu en að vera of upptek- in af því sem stóru hönnuðirnir eru að gera úti í heimi. Þess utan þá koma nýjustu tískustraumarn- ir alltaf í verslanir um leið þannig að maður er sjaldan að vinna með úrelta vöru.“ EKKERT KAMPAVÍN Samkvæmt Öldu er tískubransinn á Íslandi lítill og vinalegur og starf stílista ekki eins og margir ímynda sér, þar finnst engin dramatík eða læti. „Starfinu fylgir mikil bið, langir vinnudagar og eng- inn glamúr. Það er ekkert kampa- vín á hliðarlínunni eins og sumir halda,“ segir hún brosandi. Þó að glamúrinn sé ekki að finna í starfi stílista segist Alda hafa lent í ýmsum broslegum aðstæðum í vinnunni og nefnir sem dæmi ít- alska stórsöngkonu sem kom til Íslands til að taka upp tónlistar- myndband. „Þessi söngkona var víst mjög þekkt í heimalandinu og var með aðstoðarmanneskju með sér. Sú snerist eins og skoppara- kringla í kringum söngkonuna og ég sá hana meira að snýta henni. Það var mjög fyndið að fylgjast með þessu því þetta er ekki eitt- hvað sem við erum vön hér heima. En eftir fyrsta daginn í tökum virt- ist söngkonan hafa áttað sig á því að svona hegðun ætti ekki við hér EKKERT KAMPAVÍN Á HLIÐARLÍNUNNI „Vinna stílista getur verið nett geggjun og vinnutím- inn óguðlegur.“ Alda Björg Guðjónsdóttir rekur stílistafyrirtækið Snyrtilegur klæðnaður. Hún er einn færasti stílisti landsins og hefur starfað sem slíkur í áratug.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.